Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUngmennaráð

Ungmennaráð, fundur 6

13. apríl 2023, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Eyrún Inga Gunnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Elín Eik Guðjónsdóttir, aðalmaður
  • Margarette B. Sveinbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Manda Ómarsdóttir, aðalmaður
  • Jóel Máni Ástuson, aðalmaður
  • Hulda Lind Sævarsdóttir, aðalmaður
  • Tinna Rut Hjartardóttir, aðalmaður
  • Emilía Björk Ulathowska, aðalmaður
  • Snjólfur Björgvinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Eyrún Inga Gunnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 800 liður 24

    Fundargerð ungmennaráðs frá 13. apríl lögð fram til afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

    Mál 2011130 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð ræðir þennan valmöguleika með tilliti til kostnaðar, hvað kostar að niðurgreiða skólamáltíðir fyrir Fjarðabyggð og hvort það væri hægt að nýta þennan pening í eitthvað annað hjá sveitarfélaginu.

    Starfsmaður ungmennaráðs beðinn um að vinna málið áfram. Athuga hvað þetta verkefni kostar á ári.

  2. 2. Breyting á skólatíma

    Mál 2011130 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð setur í hendur samfélagsmiðlastjóra að gera óformlega könnun á meðal nemenda um hvort nemendur séu tilbúnir til þess að fórna frímínútum fyrir seinkun á skóladeginum. Ungmennaráðið veltir upp valmöguleikanum að prufa verkefnið til eins árs.

    Starfsmaður ungmennaráðs beðin um að vinnamálið áfram og safna frekari upplýsingum.

  3. 3. Sundkennsla

    Mál 2011130 Allur ferill málsins

    Starfsmaður ungmennaráðs beðin um að vinna málið áfram og kanna þetta m.t.t. aðalnámskrár.

  4. 4. Starfstími ungmennaráðs

    Mál 2011130 Allur ferill málsins

    Starfsmaður ungmennaráðs beðinn um að vinna málið áfram, búa til minnisblað og leggja fyrir bæjarráð.