Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 161

11. janúar 2023, kl. 16:15 til 18:45, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Inga Rún Beck Sigfúsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Þórhallur Árnason, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 780 liður 22

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 11. janúar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 345 liður 10

    Fundargerð 161. fundar félagsmálanefndar frá 11. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð 161. fundar félgsmálanefndar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu - rannsókn

    Mál 2301074 Allur ferill málsins

    Davíð Samúelsson, frá samtökunum Hinsegin lífsgæði, mætti til sameiginlegs fundar nefndanna og kynnti rannsókn sem samtökin óska eftir að framkvæma með þátttöku starfsfólks grunnskóla í Fjarðabyggð. Félagið Hinsegin lífsgæði var stofnað í tengslum við verkefnið Hinseginn stuðningur í skólaumhverfinu. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og jafnréttisnefnd forsætisráðuneytisins og er ætlað að kanna hvað gert er til að stuðla að öryggi og góðri líðan hinsegin nemenda í skólaumhverfinu. Sérstaklega verður horft til þess hvort þörf sé á sérstökum stuðningsaðila fyrir hinsegin nemendur með sérþekkingu á málefnum hinsegin fólks. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við lektor í kennslu- og kynjafræðum við Háskólann á Akureyri og ráðgjöfum sem starfa að jafnréttis- og menntunarmálum í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Fræðsluyfirvöld Fjarðabyggðar heimila fulltrúum verkefnisins að leita eftir samstarfi við skólastjórnendur um þátttöku í verkefninu með það fyrir augum að þeir tilnefni fulltrúa í hverjum skóla fyrir sig til að taka þátt í því. Samkvæmt samstarfssamningi Hinsegin lífsgæða við mennta- og barnamálaráðuneytið eru verklok áætluð í apríl 2024.

  2. 2. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Haustið 2022 var skipaður sex manna starfshópur, þrír fulltrúar úr fræðslunefnd og þrír fulltrúar úr íþrótta- og tómstundanefnd til þess að vinna að áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðabyggðar fyrir árin 2023-2025. Starfshópurinn leitaði eftir hugmyndum hjá starfsfólki fræðslu- og frístundastofnana, 120. fundur fræðslunefndar 10.01.2023 241 Fjarðaforeldrum, íþróttafélögum, ungmennaráði, öldungaráði og fleirum. Fjölmörgum hugmyndum var skilað til starfshópsins sem mótaði í framhaldi drög að áherslum til þriggja ára. Drög að áherslum voru kynnt á opnum kynningarfundi í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mánudaginn 9. janúar þar sem þátttakendur sögðu sitt álit og komu með ábendingar um breytingar. Fundurinn var í streymi þannig að þeir sem ekki gátu mætt til fundarins gátu tekið þátt í gegnum netið. Fyrir sameiginlegum fundi fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálanefndar liggja áherslur í fræðslu- og frístundamálum 2023-2025 með áorðnum breytingum eftir kynningarfundinn. Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi áherslur fyrir sitt leyti.

  3. 3. Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu

    Mál 2301026 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hornafirði um samstarf við barnaverndaþjónustu Fjarðabyggðar.

  4. 4. Undirritaður samningur um rekstur umdæmisráðs Landsbyggða barnavernd

    Mál 2301002 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri fjölskyldusviðs var með kynningu á nýju fyrirkomulagi varðandi breytingu á barnaverndarlögum sem tóku gildi um áramótin 2023. Lögin varða breytingar á barnaverndarnefnd þannig að verksvið hennar skiptist annars vegar í verkefni umdæmisráðs, sem fer með þvingunarúrræði og hinsvegar utanumhald um þjónustu og upplýsingagjöf til stjórnsýslu sem fellur undir félagsmálanefnd.

  5. 5. Vegna valdaframsal barnaverndarþjónustu

    Mál 2212065 Allur ferill málsins

    Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar.

  6. 6. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu kynnir sískráningu og þróun mála í barnavernd.

  7. 7. Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027

    Mál 2212121 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri fjölskyldusviðs kynnir tillögu að þingsáætlunar um aðgerðaáætlun í þjónustu við eldra fólk 2023-2027.

    Starfsfólki félasgmálanefndar er falið að skila inn umsögn í Samráðsgátt í samvinnu við félagsmálanefnd.

  8. 8. Drög að reglum 2023

    Mál 2211172 Allur ferill málsins

    Tillögur að breytingum á reglum um þjónustuíbúðir aldraðra kynntar. Félagsmálanefnd samþykkir breytingar á reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk. Málinu er vísað til bæjarráðs.

  9. 9. Drög að reglum 2023

    Mál 2211172 Allur ferill málsins

    Kynntar eru tillögur að breytingum á gjaldskrá um stuðningsþjónustu. Tillögur að breytingum um stuðningsþjónustu eru samþykktar og vísað til bærjarráðs.