Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 289

9. janúar 2023, kl. 16:30 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 780 liður 20

    Fundargerð 289. fundar hafnarstjórnar frá 9. janúar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 345 liður 7

    Fundargerð 289. fundar hafnarstjórnar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók Arnfríður Hafþórsdóttir

    Fundargerð 289. fundar hafnarstjórnar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn samþykkti lóðarleigusamning Fjarðabyggðar og CI ETF I Fjarðarorku HoldCo ehf. á 344.fundi sínum þann 28.desember síðastliðinn. Þann 5.janúar var samningurinn undirritaður fyrir hönd Fjarðabyggðar.

    Lóðarleigusamningur lagður fram sem trúnaðarmál til kynningar.

  2. 2. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar innra minnisblað um framkvæmdir ársins 2022.

  3. 3. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022

    Mál 2202086 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 448. fundar Hafnasambands Íslands