Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 114

7. september 2022, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 4. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 764 liður 13

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 338 liður 4

    Til máls tók Birgir Jónsson.

    Fundarðgerð fræðslunefndar frá 7. september 2022 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023

    Mál 2205097 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 í fræðslumálum ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mætti til fundarins og gerði grein fyrir áætlunargerðinni. Umræður um ramma fræðslunefndar fyrir fjárhagsárið 2023. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  2. 2. Reglur 2022

    Mál 2209008 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti til samþykktar drög að nýjum reglum varðandi samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Fræðslunefnd samþykkir drögin.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022

    Mál 2104131 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir 6 mánaða yfirliti í rekstri fræðslumála. Lagt fram til kynningar.

  4. 4. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Til umræðu var skipan starfshóps um gerð aðgerðaráætlunar í fræðslu- og frístundamálum fyrir árin 2023-2025. Áður rætt undir máli 2205097, starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að Arndís Bára Pétursdóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og Sigurjón Rúnarsson taki þátt í starfshópnum fyrir hönd íþrótta- og tómstundanefndar ásamt starfsmönnum nefndarinnar Eyrún Ingu Gunnarsdóttur og Magnúsi Árna Gunnarssyni. Fræðslunefnd fagnar áhuga fulltrúa íþrótta- og tómstundanefndar fyrir að starfa í starfshópnum og leggur til að starfshópurinn verði skipaður formönnum fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar ásamt tveimur öðrum fulltrúum úr báðum nefndum auk þess sem starfsmenn nefndanna starfi með starfshópnum. Frá fræðslunefnd sitja Birgir Jónsson, Jóhanna Sigfúsdóttir og Jónas Eggert Ólafsson og starfsmaðurinn Þóroddur Helgason. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að útbúa erindisbréf fyrir starfshópinn.