Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 115

28. september 2022, kl. 16:30 til 18:45, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, varamaður
  • Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 767 liður 14

    Fundargerð 115. fundar fræðslunefndar frá 28. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 339 liður 12

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 28. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023

    Mál 2205097 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir niðurstöðu vinnu við gerð launaáætlunar fyrir árið 2023 í fræðslumálum. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra áframhaldandi vinnu við launaáætlun þannig að hún spegli sem best kennsluúthlutunarlíkön sveitarfélagsins.

  2. 2. Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2209113 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá tónlistarskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  3. 3. Gjaldskrá leikskóla 2023

    Mál 2209161 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá leikskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  4. 4. Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 2023

    Mál 2209166 Allur ferill málsins

    Til umræðu var gjaldskrá á húsnæði grunnskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  5. 5. Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla

    Mál 2209105 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf um sundkennslu í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Í áætlunum stjórnenda Grunnskóla Reyðarfjarðar er gert ráð fyrir sundi eftir áramót en þá er ráðgert að viðgerð á sundlauginni verði lokið.

  6. 6. Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma

    Mál 2209175 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf leikskólastjóra í Fjarðabyggð um vinnutíma leikskólanna. Fræðslunefnd vísar bréfinu til vinnu við gerð aðgerðaráætlunar í fræðslu- og frístundastefnu. Fjarðabyggðar 2023-2025.

  7. 7. Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð

    Mál 2207054 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs dróg saman helstu niðurstöður úr íslensku æskulýðsrannsókninni í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd hvetur starfshóp um aðgerðaráætlun til þriggja ára í fræðslu- og frístundamálum að nýta efni úr rannsókninni sem og úr öðrum rannsóknum svo sem Skólapúlsinum og Ungu fólki.

  8. 8. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur erindisbréf sviðsstjóra fjölskyldusviðs fyrir starfshóp um aðgerðaráætlun fræðslu- og frístundastefnu fyrir árin 2023-2025. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf.