Fræðslunefnd, fundur 116
12. október 2022, kl. 16:30 til 18:40, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, varamaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Sigurjón Rúnarsson, varamaður
- Ingi Steinn Freysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 769 liður 16
Fundargerð 116. fundar fræðslunefndar frá 12. október lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 340 liður 8
Til máls tók Birgir Jónsson.
Fundagerð fræðslunefndar frá 12. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
Mál 2209228 Allur ferill málsins
Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa. Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar. Fræðslunefnd fagnar erindinu og hlakkar til samstarfs við ungmennaráð Fjarðabyggðar, m.a. við vinnu við að semja áherslur í fræðslu- og frístundamálum til næstu þriggja ára.
-
2. Gjaldskrá frístundaheimila 2023
Mál 2210051 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá frístundaheimila fyrir árið 2023.Í tillögunni er gert ráð fyrir 4,9% hækkun á gjaldskrá frá árinu 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
3. Gjaldskrá leikskóla 2023
Mál 2209161 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá leikskóla fyrir árið 2023.Í tillögunni er gert ráð fyrir 4,9% hækkun á gjaldskrá frá árinu 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
4. Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023
Mál 2209113 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá tónlistarskóla fyrir árið 2023.Í tillögunni er gert ráð fyrir 4,9% hækkun á gjaldskrá frá árinu 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
5. Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 2023
Mál 2209166 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá húsnæðis grunnskóla fyrir árið 2023.Í tillögunni er gert ráð fyrir 4,9% hækkun á gjaldskrá frá árinu 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
Mál 2205097 Allur ferill málsins
Til umfjöllunar er starfs- og fjárhagsáætlun 2023 í fræðslumálum. Formaður fræðslunefndar greindi frá fundi með bæjarráði þar sem farið var yfir vinnu starfsmanna fræðslusviðs við fjárhagsáætlun. Farið var yfir úthlutunarlíkön leik- og grunnskóla ásamt að skoða aðra rekstrarliði. Máli frestað til næsta fundar.
-
7. Beiðni um breytingu á skóladagatali
Mál 2210076 Allur ferill málsins
Borist hefur erindi frá Eskifjarðarskóla þar sem óskað er eftir breytingu á skóladagatali 2022-2023. Erindið hefur verið tekið fyrir og samþykkt í skólaráði Eskifjarðarskóla. Fræðslunefnd samþykkir breytingar á skóladagatali.