Bæjarráð, fundur 767
3. október 2022, kl. 08:30 til 10:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 339 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 3. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Mál 2205271 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir stöðu við vinnu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar. Fundir bæjarstjóra og fjármálastjóra með formönnum nefnda og sviðsstjórum verða í vikunni og í þar næstu viku mæta þeir á fund bæjarráðs.
-
2. Fasteignir í eigu Fjarðabyggðar
Mál 2209209 Allur ferill málsins
Lögð fram greinargerð um stöðu á sölu eigna Fjarðabyggðar samkvæmt samþykktum bæjarstjórnar, ásamt tillögu að sölu og söluaðferð 3ja eigna að auki.
Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og felur fjármálastjóra að vinna málið áfram.
-
3. Foktjón í september 2022
Mál 2209216 Allur ferill málsins
Farið yfir tjón á mannvirkjum og eignum vegna ofsaveðurs sem gekk yfir Fjarðabyggð 25. og 26. september. Unnið verður að viðgerðum og uppgjörum tengdum tjónum.
-
4. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2022
Mál 2209219 Allur ferill málsins
Framlagt ársfundarboð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudag 12. október kl. 16:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra Fjarðabyggðar, Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð sveitarfélagsins á ársfundinum.
-
5. Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöð Stöðvarfirði
Mál 2209222 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði um fjárstyrk til rannsókna.
Bæjarráð lýsir ánægju með störf áhugafólksins og styður við verkefnið með svipuðum hætti og undanfarin ár. Leitað verður leiða til að finna fleiri stuðningsaðila að verkefninu. Vísað til stjórnar menningar- og safnastofnunar.
-
6. Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
Mál 2209228 Allur ferill málsins
Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.
Bæjarráð vísar erindi til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar.
-
7. Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla
Mál 2209105 Allur ferill málsins
Framlagt bréf skólastjórnenda við Grunnskóla Reyðarfjarðar vegna afgreiðslu bæjarráðs á bréfi um sundlaug á Reyðarfirði og sundkennslu. Fjárveiting til aksturs barna í sundkennslu er áætlaður á árinu 2022 með sama hætti og var í áætlun ársins 2021.
Lagt fram til kynningar.
-
8. Uppbygging smáhúsahverfafrístundahúsa í Fjarðabyggð
Mál 2209243 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Árnýju Hafborgu Hálfdánardóttur þar sem óskað er eftir fundi með bæjarstjóra og bæjarstjórn vegna uppbyggingar á smáhýsahverfi/frístundahúsum í Fjarðabyggð.
Bæjarráð fagnar áformum og felur bæjarstjóra að ræða við málsaðila.
-
9. Vettvangsferð til Danmerkur á vegum Íslandsstofu vegna vindorkumála.
Mál 2209128 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar í vettvangsferð til Danmerkur á vegum Íslandsstofu vegna vindorkumála verði tveir. Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs falið að velja fulltrúa til ferðarinnar.
-
10. Tillögur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku.
Mál 2208114 Allur ferill málsins
Framlögð drög að svari við erindi starfshóps um til nýtingu vindorku.
Bæjarráð samþykkir drög að umsögn með uppfærslu sem samþykkt var á fundi.
-
11. Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 1-7
Mál 2209201 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Reisugils ehf um lóðirnar að Hlíðarbrekku 1,3,5, og 7 á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðanna.
-
12. Umsókn um lóð Hafnarbraut 40
Mál 2209220 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Hrafnshóls EHF um lóð að Hafnarbraut 40, í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og afturkallar þar með úthlutun lóðarinnar til Fjarðabyggðar f.h. Brákar íbúðarfélags hses.
-
13. Barnaverndarnefnd 2022
Mál 2202112 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð barnaverndarnefndar nr. 157. frá 6. september til afgreiðslu.
-
14. Fræðslunefnd - 115
Fundargerð 115. fundar fræðslunefndar frá 28. september lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20232205097
- 14.2 Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 20232209113
- 14.3 Gjaldskrá leikskóla 20232209161
- 14.4 Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 20232209166
- 14.5 Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla2209105
- 14.6 Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma2209175
- 14.7 Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð2207054
- 14.8 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
-
15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 105
Fundargerð 105. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu.
- 15.1 Launaáætlun íþróttamannvirkja 2023
-
16. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 8
Fundargerð 8. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 27. september lögð fram til afgreiðslu.
- 16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20232208083
- 16.2 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2209218
- 16.3 740 Melagata 12 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2205208
- 16.4 Umsókn um lóð Hafnarbraut 402209220
- 16.5 Umsókn um lóðir Hlíðarbrekka 1-3-5-72209201
- 16.6 Umsókn um stöðuleyfi2209200
- 16.7 Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku2209217
- 16.8 Fugladauði2208118
- 16.9 Ný staðsetning gámasvæða2209189
- 16.10 Geymslusvæði Eskju á Eskifirði2209151
- 16.11 Lystigarðurinn í Neskaupstað2209110
- 16.12 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20232209158
- 16.13 Gjaldskrá hunda og kattahald 20232209170
- 16.14 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20232209117
- 16.15 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20222202061
- 16.16 Fjallskilanefnd - 22209010F
-
17. Mannvirkja- og veitunefnd - 5
Fundargerð 5. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 26. september lögð fram til afgreiðslu.
-
18. Félagsmálanefnd - 157
Fundargerð 157. fundar félagsmálanefndar frá 20. september lögð fram til afgreiðslu.