Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 768

10. október 2022, kl. 08:30 til 15:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 340 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundagerð bæjarráðs frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023

    Mál 2208080 Allur ferill málsins

    Formaður og sviðsstjóri ásamt stjórnanda stoðþjónustu gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2023

    Mál 2208078 Allur ferill málsins

    Formaður og sviðsstjóri ásamt deildarstjóra og forstöðumaður gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023

    Mál 2208077 Allur ferill málsins

    Formaður og sviðsstjóri ásamt verkefnastjóra gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023

    Mál 2208083 Allur ferill málsins

    Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjóri ásamt fjármálastjóra gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023

    Mál 2208081 Allur ferill málsins

    Formaður stjórnar og bæjarritari gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023

    Mál 2205097 Allur ferill málsins

    Formaður, fræðslustjóri og sviðsstjóri gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023

    Mál 2208082 Allur ferill málsins

    Formaður mannvirkja- og veitunefndar og sviðsstjóri gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.

  8. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2023

    Mál 2208079 Allur ferill málsins

    Bæjarritari, mannauðsstjóri, fjármálastjóri og slökkviliðsstjóri gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2023.

  9. 9. Styrkur frá Alcoa Foundation 2023

    Mál 2210049 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir styrk frá Alcoa Foundation að upphæð 25.000 dollara (3,6 milljónir króna). Styrkurinn er ætlaður til verkefna tengdum enduruppbyggingu vegna óveðursins í september.

    Bæjarráð þakkar fyrir veglegan styrk sem kemur sér mjög vel en hluti af tjónum sveitarfélagsins er ekki bætt og nýtist styrkurinn til að bæta þau. Bæjarstjóra falið að útfæra nýtingu á styrknum í samráði við Alcoa.

  10. 10. Málefni KFF 2023 - Trúnaðarmál

    Mál 2210037 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað deildarstjóra íþróttamála vegna málefna Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar (KFF).

    Bæjaráð felur deildarstjóra íþróttamála að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundi.

  11. 11. Erindi frá íbúum í Breiðablik

    Mál 2210032 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá íbúum í Breiðablik í Neskaupstað um aðstöðu þeirra í húsnæðinu og ráðstöfun þess.

    Erindi vísað til félagsmálanefndar til umfjöllunar.

  12. 12. Beiðni Skíðafélags Fjarðabyggðar um fund með bæjastjórn

    Mál 2210030 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni frá Skíðafélagi Fjarðabyggðar um fund með bæjarráði vegna málefna félagsins.

    Bæjarráð samþykkir að fá forsvarsmenn félagsins til fundar.

  13. 13. Erindi til bæjarráðs og bæjarstjórnar vegna frágangs á Haga og Teigagerði á Reyðarfirði

    Mál 2210016 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Agnari Bóassyni frá 3. október þar sem lögð fram fyrirspurn um frágáng á vinnubúðunum á Haga og svæðinu við Teigagerði.

    Vísað til skipulags- og umhverfisfulltrúa til afgreiðslu.

  14. 14. Umsögn frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.

    Mál 2210017 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis þar sem óskað er umsagnar Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum nr.123/210 (Uppbygging innviða) 144.mál.

    Vísað til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd.

  15. 15. Opinn samráðsvettvangur

    Mál 2210055 Allur ferill málsins

    Innviðaráðuneytið boðar til opinna samráðsfunda í öllum landshlutum undir yfirskriftinni, Vörðum leiðina saman. Íbúum í öllum landshlutum er boðið til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fjarfundur fyrir Austurland verður haldinn 18. október nk.

  16. 16. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022

    Mál 2201106 Allur ferill málsins

    Fundargerð 913. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar

  17. 17. Íþrótta- og tómstundanefnd - 106

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 106. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 3. október tekin til afgreiðslu

    1. 17.1 Launaáætlun íþróttamannvirkja og frístundaþjónustu2023
  18. 18. Fjallskilanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 14. september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 18.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 20232208084
    2. 18.2 Fjallskilasamþykkt SSA2208175