Bæjarráð, fundur 761
22. ágúst 2022, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 336 liður 5
Fundargerð bæjarráðs frá 22 ágúst lögð fram til kynningar. Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2204062 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur Fjarðabyggðar fyrstu sex mánuði ársins 2022, auk deildayfirlits fyrir sama tímabil.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Mál 2205271 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað og tillögur fjármálastjóra um tekju- og gjaldaforsendur fjárhagsáætlunar ársins 2023 og 3ja ára áætlunar fyrir árin 2024-2026. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
3. Álagning vatnsgjalds - breytt aðferð álagningar
Mál 2002002 Allur ferill málsins
Framlögð samantekt fjármálastjóra á hugmyndum um breytingu á álagningu vatnsgjalds í Fjarðabyggð frá 2020. Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu við breytingu á framsetningu álagningar á vatnsgjaldi þar sem horft verður til stærðar eigna í sveitarfélaginu í stað verðmætis. Fjármálastjóra falið að hefja þá vinnu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2023.
-
4. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2021
Mál 2208075 Allur ferill málsins
Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2021 lagður fram til undirritunar. Ársreikningurinn hefur þegar verið samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar.
-
5. Grenndarkynning Hrauntún 3-5 og 7-13 raðhúsarlóð
Mál 2208018 Allur ferill málsins
Grenndarkynning vegna breytinga á lóðum Hrauntúni 1-9 á Breiðdalsvík lögð fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir grendarkynninguna.
-
6. Bréf frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar
Mál 2208086 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar. Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umfjöllunar í mannvirkja og veitunefnd.
-
7. Breyting á eldisfyrirkomulagi Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði
Mál 2207037 Allur ferill málsins
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn vegna tilkynningar Fiskeldis Austfjarða hf. á breytingu á eldisfyrirkomulagi í Fáskrúðsfirði. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að ganga frá umsögn í samræmi við fyrri umsagnir sveitarfélagsins.
-
8. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
Mál 2004159 Allur ferill málsins
Skráningar í heilsueflingu 65 ára og eldri hófust mánudaginn 8. ágúst og hafa 130 manns skráð sig. Upphaflega var fjárhagslegt samþykki fyrir 80 manns í verkefninu.
Deildarstjóri óskar þess vegna eftir auka fjármagni til verkefnisins til að mæta aukinni eftirspurn og samkomulag liggur fyrir við Janus heilsueflingu varðandi það. Bæjarráð fagnar þessum mikla áhuga á verkefninu og samþykkir að veita 1.735.000 kr. til verkefnsins af liðnum óráðstafað.
-
9. Íslandsdagar 23. til 26. september Gravelines
Mál 2207002 Allur ferill málsins
Gert er ráð fyrir að bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar sæki hátíðahöld þessa árs, ásamt fulltrúa frá skipulagsnefnd Franskra daga.
-
10. Málefni brothættra byggða
Mál 2103191 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að Stefán Þór Eysteinsson taki sæti Eydísar Ásbjörnsdóttur í starfshópi um verkefnið Brothættar byggðir á Stöðvarfirði.