NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 5
23. ágúst 2022, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 762 liður 15
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. ágúst lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 337 liður 4
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. ágúst utan liðar 13 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða
Mál 2207045 Allur ferill málsins
Meðfylgjandi er erindi þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar Fjarðabyggðar og hafnarstjórnar á tillögu um strandsvæðisskipulag Austfjarða. Frestur til að skila inn umsögn er til 15. september næst komandi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera umsögn fyrir hönd Fjarðabyggðar og kynna fyrir nefndinni á fundi 6.
-
2. Strandgata 18a 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2208038 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Nestaks ehf, dagsett 10. ágúst 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á lóð við Strandgötu 18a á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Strandgata 18b 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2208037 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Nestaks ehf, dagsett 10. ágúst 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á lóð við Strandgötu 18b á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Strandgata 16 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2208039 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Nestaks ehf, dagsett 10. ágúst 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á lóð við Strandgötu 16 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Egilsbraut 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2208035 Allur ferill málsins
Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Egilsbraut 6
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Pan ehf, dagsett 9. ágúst 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á verslunarhúsnæði Pan á lóð við Egilsbraut 6 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
6. Grenndarkynning Hrauntún 3-5 og 7-13 raðhúsarlóð
Mál 2208018 Allur ferill málsins
Ný grenndarkynning vegna breytinga á lóðunum Hrauntúni 1-9, Breiðdalsvík lögð fram til samþykktar. Fyrri grenndarkynning var kynnt á 4.fundi umhverfis- og skipulagsnefndar en hún var dregin til baka vegna athugasemda. Ný grenndarkynning kynnt með sama fyrirkomulagi og fyrri, allar undirskriftir liggja fyrir. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir grenndarkynninguna.
-
7. Umsókn um lóð að Hrauntúni 7-9
Mál 2208117 Allur ferill málsins
Róbert Óskar Sigurvaldason sækir um lóð að Hrauntúni 7-9 Breiðdalsvík fyrir parhús. Umsóknin kemur í kjölfar grenndarkynningar sem gerð var fyrr í ágúst. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
8. Umsókn um lóð - 730 Hjallaleira21
Mál 2207134 Allur ferill málsins
Malbikunarstöð Austurlands sækir um lóð að Hjallaleiru 21, 730 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2208090 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi frá Inga Vilbergssyni varðandi Austurveg 59c, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að útbúa lóðarblað og gera nýjan lóðarleigusamning.
-
10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2208036 Allur ferill málsins
ÞR Eignir ehf. óska eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi á Hafnargötu 7, 730 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
11. Norðfjarðarflugvöllur
Mál 2208073 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar beiðni frá Isavia um endurnýjun girðingar á suðurkanti Norðfjarðarflugvallar.
-
12. Umsókn um lóð Öldugata 730
Mál 2208027 Allur ferill málsins
Á fundi 4. hjá umhverfis- og skipulagsnefnd var lóðarumsókn frá Rarik varðandi spennistöð við Öldugötu lögð fyrir. Þeirri umsókn var hafnað í ljósi óheppilegrar staðsetningar og skipulags- og umhverfisfulltrúa var falið að finna nýja staðsetningu fyrir spennistöðina í samráði við Rarik. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nýja framlagða tillögu lóðar.
-
13. Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhúsnæði að Daltúni 9
Mál 2207091 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhúsnæði að Daltúni 9. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um lóð að Daltúni 9 og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út lóðarblað.
-
14. Umsókn um lóð Heiðarvegur 730
Mál 2208028 Allur ferill málsins
Á fundi 4. hjá umhverfis- og skipulagsnefnd var lóðarumsókn frá Rarik varðandi spennistöð við Heiðarveg lögð fyrir. Þeirri umsókn var hafnað í ljósi óheppilegrar staðsetningar og skipulags- og umhverfisfulltrúa var falið að finna nýja staðsetningu fyrir spennistöðina í samráði við Rarik. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að málið fari í grenndarkynningu í Efstagerði 1-3-5-7.