Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 4

11. ágúst 2022, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 760 liður 13

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 11. ágúst sl. lögð fram til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með fullnaðarumboði til afgreiðslu mála meðan leyfi bæjarstjórnar stendur.

Dagskrá

  1. 1. Grenndarkynning Hrauntún 3-5 og 7-13 raðhúsarlóð

    Mál 2208018 Allur ferill málsins

    Fram lögð drög að grenndarkynningu fyrir lóðirnar Hrauntún 3 til 5 og 7 til 13 á Breiðdalsvík vegna umsóknar um parhúss og fjórbýli á lóðunum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir grenndarkynningu og fagnar uppbyggingu á Breiðdalsvík.

  2. 2. Umsókn um lóð - 730 Hjallaleira21

    Mál 2207134 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðarumsókn Malbikunarstöðvar Austurlands þar sem sótt er um iðnaðarlóðina Hjallaleiru 21. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram og ræða við umsækjanda. Málið verður tekið upp að nýju á næsta fundi.

  3. 3. Naustahvammur 54 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2207135 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingarleyfi frá Heimi Snæ Gylfasyni þar sem sótt er um leyfi til að byggja stálgrindarhús á lóð nr. 54 við Naustahvamm, Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. 740 Sæbakki 19 ABCD Byggingarleyfi

    Mál 2208007 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir hönd Búðinga ehf. þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús að Sæbakka 19 á Norðfirði.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað og að uppfylltum byggingarskilmálum lóðarinnar.

  5. 5. 755 Óseyri - Framkvæmdaleyfi, efnistaka

    Mál 2204093 Allur ferill málsins

    Fram lagður tölvupóstur frá Ívari Ingimarssyni vegna framkvæmdaleyfis fyrir malarnám á efni í landi Óseyrar á Stöðvarfirði. Námu hefur verið lokað og ekki gert ráð fyrir efnistöku í aðalskipulagi úr námunni.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd afturkallar framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr malarnámu í landi Óseyrar.

  6. 6. Umsókn um lóð Heiðarvegur 730

    Mál 2208028 Allur ferill málsins

    Lögð fram fyrirspurn varðandi lóð fyrir spennustöð upp við Heiðarveg og Hæðargerði, við stríðsárasafn. Umhverfis og skipulagsnefnd hafnar umsókninni og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að finna heppilegri staðsetningu fyrir nýja spennistöð í samráði við umsækjanda.

  7. 7. Umsókn um lóð Öldugata 730

    Mál 2208027 Allur ferill málsins

    Lögð fram fyrirspurn varðandi lóð fyrir spennustöð upp við Öldugötu, neðan við Austurveg. Umhverfis og skipulagsnefnd hafnar umsókninni og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að finna heppilegri staðsetningu fyrir nýja spennistöð í samráði við umsækjanda.

  8. 8. 750 Beiðni um breytingu á heiti landsins - jarðarinnar Neðri-Vík í Blávík

    Mál 2205168 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um breytingu á nafni jarðarinnar Neðri Vík verði Blávík. Jörðin er á suðurströnd Fáskrúðsfjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nafnabreytingu á jörðinni Neðri-Vík

  9. 9. Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi á haustdögum 2022

    Mál 2207133 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Landsamtaka landeigenda á Íslandi til kynningar um fyrirhugaðan aðalfund og starfsemi samtakanna.

  10. 10. Fjallskilanefnd - 1

    Fundargerðin í heild

    fundagerð fjallskilanefndar 10.8.2022 lögð fram til afgreiðslu

    1. 10.1 Erindisbréf fjallskilanefndar2205302
    2. 10.2 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 20262205172
    3. 10.3 Úrgangsmál, dýrahræ og alm. úrgangur í dreifbýli2207099
    4. 10.4 Fjallskil og gangnaboð 20222207098
    5. 10.5 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042