Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 346

2. febrúar 2023, kl. 16:15 til 17:15, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, varamaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Bæjarráð - 781

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:01:24

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 781 og 782. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð bæjarráðs nr. 781 er samþykkt með 9 atkvæðum

    1. 1.1 Erindi um opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði2301135
    2. 1.2 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 20232205294
    3. 1.3 Erindisbréf ungmennaráðs2301116
    4. 1.4 Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 202323010750:05:36
    5. 1.5 Stjórnkerfisnefnd 2020-202320112030:06:32
    6. 1.6 Erindi frá Austurbrú og SSA um þátttöku í nýju verkefni23011630:01:24
    7. 1.7 Akstur á skíðasvæði2301164
  2. 2. Bæjarráð - 782

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:03:16

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 781 og 782. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð bæjarráðs nr. 782 er samþykkt með 9 atkvæðum

    1. 2.1 Veikindalaun 202222041830:08:52
    2. 2.2 Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 52301201
    3. 2.3 Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu23010260:03:16
    4. 2.4 Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími leikskólar22100190:32:40
    5. 2.5 Bref til bæjarstjórnar varðand Kirkjuból í Neskaupstað2301049
    6. 2.6 Vígsla íþróttahúss á Reyðarfirði 12. febrúar 202323012060:33:36
    7. 2.7 Erindi varðandi Búðaveg 8, Fáskrúðsfirði - Tempalarinn2301198
    8. 2.8 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði2201189
    9. 2.9 Aðalskipulag breyting á skilmálum vegna skógrækt2301094
    10. 2.10 Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur2301019
    11. 2.11 Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgata 582301138
    12. 2.12 Umsókn um lóð Búðareyri 102301159
    13. 2.13 Erindi frá grunnskóla börnum á Fáskrúðsfirði varðandi umferðaröryggi, gangbrautir og lýsingu23012050:04:12
    14. 2.14 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20232301183
    15. 2.15 Hafnarstjórn - 2902301018F
    16. 2.16 Íþrótta- og tómstundanefnd - 1122301017F
    17. 2.17 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 162301010F
  3. 3. Íþrótta- og tómstundanefnd - 112

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:35:56

    Fundargerð 112. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 23. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls

    Fundgerð 112. fundar íþrótta- og tómstundanefndar er samþykkt með 9 atkvæðum

    1. 3.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2023
    2. 3.2 Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2022
    3. 3.3 Ungmennaráð - 5
  4. 4. Hafnarstjórn - 290

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:36:24

    Fundargerð 290. fundar hafnarstjórnar frá 23. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls

    Fundgerð 290. fundar hafnarstjórnar er samþykkt með 9 atkvæðum

    1. 4.1 Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat2009216
    2. 4.2 Hafnarstjórn erindi frá starfsmönnum2301162
  5. 5. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 16

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:36:52

    Fundargerð 16. fundar umhverfis og skipulagsnefndar frá 24. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók: Þuríður Lillý Sigurðardóttir

    Fundargerð 16. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar er samþykkt með 9 atkvæðum

    1. 5.1 Hjallanes 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2301089
    2. 5.2 Hraun 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2301146
    3. 5.3 Umsókn um lóð Búðareyri 102301159
    4. 5.4 Deiliskipulagsvinna: Sjávargötureiturinn, Reyðarfirði2211007
    5. 5.5 Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað2301161
    6. 5.6 Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur kynning á stöðu verkefnis23010190:37:20
    7. 5.7 Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgata 582301138
    8. 5.8 Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði2201189
    9. 5.9 Aðalskipulag br. skógrækt2301094
    10. 5.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólbakki 32301160
    11. 5.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðavegur 592301132
    12. 5.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðgarður 92301153
    13. 5.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hjallavegur 32301099
    14. 5.14 Lausar lóðir í Fjarðabyggð23011280:37:48
    15. 5.15 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásvegur 282301166
    16. 5.16 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20232301174
    17. 5.17 Selhella - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2301177
    18. 5.18 Hljóðmælingar Búðaveg 2423011790:38:44
  6. 6. Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 5

    Mál 2301201 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:39:12

    Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022 sem vísað var frá bæjarráði. Viðaukin er gerður til að millifæra af sérstökum liðum fjárhagsáætlunar þ.e. af óvissum útgjöldum sem bæjarráð hefur samþykkt á árinu, úthlutun námsstyrkja og vegna samþykktar um úthlutun veikindalauna

    Hækkun á launaliðum vegna veikinda starfsmanna nemur 53,8. m.kr. í A-hluta sem skiptist á ýmsar deildir skv. sundurliðun. Aðrar breytingar í viðaukanum varða millifærslur og hafa engin áhrif á eigið fé eða sjóðsstöðu Fjarðabyggðar.

    Saman dregið hafa þessar breytingar á fjárhagsáætlun þau áhrif að rekstrarniðurstaða A-hluta lækkar sem nemur 53,8 m.kr. en rekstrarniðurstaða B-hluta verður óbreytt. Heildaráhrfin eru til því til lækkunar á samstæðu um 53,8 m. kr.

    Rekstrarniðurstaða A-hluta er nú áætluð neikvæð um 84,3 m.kr. en rekstrarniðurstaða samstæðunar í heild er nú áætluð jákvæð um 497.9 m.kr. fyrir árið 2022.

    Saman dregið er nú áætlað að sjóðstaða Fjarðabyggðar í árslok 2022 verði neikvæð um 8.5 milljónir króna. Sjóðasstaða í reynd verði önnur vegna breytinga sem verða í rekstri og efnahag en ekki er fjallað um í viðaukum við fjárhagsáætlun.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka 5 við fjárhagsáætluna 2022 með 9 atkvæðum

  7. 7. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023

    Mál 2205294 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:43:52

    Framlagðar, til síðari umræðu, breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum ásamt breyttu ferli við endurnýjun lóðaleigusamninga.

    Þar sem að ábendingar bárust frá ráðuneytinu varðandi breytingarnar sem ekki hefur verið hægt að bregðast við þarf að fresta fyrirtöku þeirra að sinni.

    Bæjarstjórn samþykkir að vísa breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar til bæjarráðs

  8. 8. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2301075 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:18:40

    Bæjarstjóri mælti fyrir Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023 til síðari umræðu. Húsnæðisáætluninni var vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn frá bæjarráði.

    Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023 með 9 atkvæðum

  9. 9. Erindisbréf ungmennaráðs

    Mál 2301116 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:49:00

    Forseti bæjarstjórnar mæti fyrir erindsbréfi ungmennaráðs við síðari umræðu í bæjarstjórn.

    Í erindsbréfinu eru hlutverk og skyldur ráðsins uppfærðar til samræmis við aðrar nefndir hjá sveitarfélaginu.

    Engin tók til máls.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir erindisbréf ungmennaráðs með 9 atkvæðum

  10. 10. Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu

    Mál 2301026 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:49:28

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir samningi um sameiginlega barnverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Hornafjarðar á Austurlandi. Bæjarráð hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti og vísaði honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarrstjórnar. Með samningunum munu Fjarðabyggð og sveitarfélagið Hornafjörður sameinast um rekstur barnaverndarþjónustu.

    Engin tók til máls.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir samningin með 9 atkvæðum

  11. 11. Aðalskipulag breyting á skilmálum vegna skógrækt

    Mál 2301094 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:51:20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á skilmálum vegna skógræktar í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 - 2040. Umhverfis- og skipulagsnefnd og bæjarráð hafa samþykkt breytinguna fyrir sitt leita og er þeim vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin felur í sér að leyfileg stærð skógræktarsvæða undir landnotkunarflokknum landbúnaðarsvæði verði 50 hektarar í stað 200 hektara áður.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir breytingu á skilmálum í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 - 2040 með 9 atkvæðum.

  12. 12. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði

    Mál 2201189 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:54:08

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir auglýsingu á deilskipulaginu "Dalur Athafnasvæði". Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að auglýsa deiliskipulag Dalur - Athafnasvæði" sbr. 41. gr. skipulagslaga.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagið Dalur athafnasvæði