Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 781

23. janúar 2023, kl. 08:30 til 10:30, Í Múlanum - Norðfirði. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 346 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 781 og 782. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

    Fundargerð bæjarráðs nr. 781 er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Erindi um opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði

    Mál 2301135 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá þjónustuþegum íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði varðandi breyttan opnunartíma þeirra. Bæjarráð þakkar fyrir erindið en um er að ræða ákvörðun sem tekin var við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023. Erindinu er vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd sem skoða mun útfærslur þessara aðgerða.

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun þessa liðar.

  2. 2. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023

    Mál 2205294 Allur ferill málsins

    Framlagðar breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum ásamt breyttu ferli við endurnýjun lóðaleigusamninga. Bæjarráð vísar breytingum á samþykktunum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  3. 3. Erindisbréf ungmennaráðs

    Mál 2301116 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til síðari umræðu í bæjarráði erindisbréfi ungmennaráðs. Bæjarráð samþykkir að vísa erindisbréfi ungmennaráðs til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  4. 4. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2301075 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs til síðari umræðum tillögu að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023. Bæjarráð samþykkir að vísa húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  5. 5. Stjórnkerfisnefnd 2020-2023

    Mál 2011203 Allur ferill málsins

    Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd tók til umfjöllunar tillögur bæjarstjóra að breytingum á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarstjóra og felur honum úrvinnslu breytinganna, kynningu hennar meðal starfsmanna og áframhaldandi vinnu.

  6. 6. Erindi frá Austurbrú og SSA um þátttöku í nýju verkefni

    Mál 2301163 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi sem trúnaðarmál frá Austurbrú og SSA um þátttöku sveitarfélaganna á Austurlandi í nýju verkefni hjá Austurbrú í samstarfi við fleiri aðila. Unnið hefur verið að mótun verkefnisins í haust og liggja fyrir samningsdrög og upplýsingar um aðkomu sveitarfélagnna.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir þátttöku í verkefninu og felur bæjarstjóra að vinna að frágangi samnings þess efnis.

  7. 7. Akstur á skíðasvæði

    Mál 2301164 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað vegna aksturs á Skíðasvæðið í Oddsskarði. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum