Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2023

Erindi um opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði

Mál 2301135 Fyrst á dagskrá 23. janúar 2023, síðast 2. febrúar 2023. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: ReyðarfjörðurÍþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2023

    Bæjarráð, fundur 781 liður 1

    Framlagt erindi frá þjónustuþegum íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði varðandi breyttan opnunartíma þeirra. Bæjarráð þakkar fyrir erindið en um er að ræða ákvörðun sem tekin var við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023. Erindinu er vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd sem skoða mun útfærslur þessara aðgerða.

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun þessa liðar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 346 liður 1.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 781“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is