NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 16
24. janúar 2023, kl. 08:15 til 10:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 782 liður 17
Fundargerð 16. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 24. janúar lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 346 liður 5
Fundargerð 16. fundar umhverfis og skipulagsnefndar frá 24. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók: Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Fundargerð 16. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Hjallanes 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2301089 Allur ferill málsins
Hjallanes 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
2. Hraun 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2301146 Allur ferill málsins
ALCOA sækir um byggingaráform og byggingar leyfi vegna viðgerð á núverandi gólfum í kerskálum (byggingar 321). Gólf á milli bita eru brotin niður og endursteypt með 50 mm þykkari gólfum, breyttri steinsteypugerð og járnbendingu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Umsókn um lóð Búðareyri 10
Mál 2301159 Allur ferill málsins
Umsókn Heilbrigðisstofnun Austurlands um lóð að Búðareyri 10, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera breytingar á deiliskipulagi og vinna málið áfram. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni þegar deiliskipulagsvinnu er lokið og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
-
4. Deiliskipulagsvinna: Sjávargötureiturinn, Reyðarfirði
Mál 2211007 Allur ferill málsins
Deiliskipulagsvinna: Sjávargötureiturinn, Reyðarfirði (Nesbraut 3). Kynning á framvindu verkefnis. Málið hefur verið kynnt.
-
5. Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað
Mál 2301161 Allur ferill málsins
Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta deiliskipulagi.
-
6. Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur kynning á stöðu verkefnis
Mál 2301019 Allur ferill málsins
Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur (Selnes) kynning á stöðu verkefnis og niðurstöðum kynningarfunds skipulags- og umhverfisfulltrúa sem haldinn var á Breiðdalsvík 19.01.2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og vísar erindinu í bæjarráð.
-
7. Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgata 58
Mál 2301138 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgötu 58, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðar og vísar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
-
8. Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Mál 2201189 Allur ferill málsins
Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði til samþykktar í auglýsingu. Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnti fyrirhugaða lokun á aflögðum vatnsholum innan marka deiliskipulags sem um ræðir. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið í auglýsingu.
-
9. Aðalskipulag br. skógrækt
Mál 2301094 Allur ferill málsins
Aðalskipulag Fjarðabyggðar. Breyting á skilmálum landflokksins Landbúnaðarland vegna stærðar á skógrækt. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í bretingu á skilmálum vegna skógræktar á landbúnaðarsvæði í Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2020-2040.
"Skógrækt er þó ekki heimil á góðu akuryrkjulandi, nema um skjólbelti sé að ræða, né heldur á svæðum sem njóta verndar vegna jarðminja, vistkerfa eða menningarminja.“
Verður að
"Skógrækt er þó ekki heimil á góðu ræktunarlandi, nema um skjólbelti sé að ræða, né heldur á svæðum sem njóta verndar vegna jarðminja, vistkerfa eða menningarminja.“
-
10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólbakki 3
Mál 2301160 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólbakka 3, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðavegur 59
Mál 2301132 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Búðaveg 59, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
12. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðgarður 9
Mál 2301153 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Miðgarð 9, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
13. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hjallavegur 3
Mál 2301099 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hjallaveg 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
14. Lausar lóðir í Fjarðabyggð
Mál 2301128 Allur ferill málsins
Nýtt skjal fyrir lausar lóðir í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna og samþykkir nýtt skjal fyrir lausar lóðir í Fjarðabyggð og að það verði birt á vefsíðu Fjarðabyggðar.
-
15. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásvegur 28
Mál 2301166 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Ásveg 28, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
-
16. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
Mál 2301174 Allur ferill málsins
171. fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands. Kynnt
-
17. Selhella - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2301177 Allur ferill málsins
Selhella - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
18. Hljóðmælingar Búðaveg 24
Mál 2301179 Allur ferill málsins
Hljóðmælingar Búðaveg 24 lög fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að fá að fylgjast með framgangi mála er varðar úrbætur og aðhald sem Heilbrigðisnefnd hefur krafið Loðnuvinnsluna um.