Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 964

12. október 2026, kl. 09:00 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 423 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 963, 964 og 965 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason og Kristinn Þór Jónasson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 964 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Málaskrá og ábendingakerfi

    Mál 2510183 Allur ferill málsins

    Framhald af umræðum frá síðasta fundi um ábendingakerfi Fjarðabyggðar. Forsvarsmenn Markaðsdeildarinnar ehf mæta á fundinn kl. 09:00 og fara yfir nýja virkni sem unnið er að í Fjarðabyggðar appinu varðandi ábendingar. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.

  2. 2. Sjálfvirknivæðing móttöku og símsvörunar 2026

    Mál 2609028 Allur ferill málsins

    Unnið hefur verið að undirbúningi sjálfsafgreiðslu í móttökum bæjarskrifstofunnar á Búðareyri og Hafnargötu og útvistunar símsvörunar og netspjalls. Fyrir liggja tilboð í símsvörun og móttökukerfi vegna afgreiðslu og einnig minnisblað upplýsingafulltrúa vegna þeirra.

    Bæjarráð samþykkir að taka annarsvegar tilboði Halló vegna símsvörunar og Edico Visit vegna móttökukerfis.

  3. 3. Innleiðing gervigreindar

    Mál 2610063 Allur ferill málsins

    Framlagt innra vinnuskjal bæjarstjóra og sviðsstjóra mannauðs- og umbótamál varðandi innleiðingu á gervigreind ásamt fyrstu drögum að reglum um notkun gervigreindar.

    Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

  4. 4. Skólaakstur endurnýjun samninga 2026-2029

    Mál 2607025 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna stöðu samninga um skólaakstur.

    Í ljósi annmarka sem komið hafa fram í ferli varðandi framlengingu samninga um akstur skólabarna í Fjarðabyggð, og þeirrar niðurstöðu úr samtölum við núverandi akstursaðila að best fari á því að fella úr gildi núverandi samkomulag um aksturinn samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi um gagnkvæm samningslok við Tanna Ferðaþjónustu ehf. frá 31. desember 2026 sem tryggi órofna þjónustu fram að áramótum og feli jafnframt í sér fullt og endanlegt uppgjör á milli aðila.

    Samhliða samþykkir bæjarráð að hefja þegar í stað formlegan undirbúning að nýju innkaupaferli skólaakstursþjónustu sveitarfélagsins í samræmi við meginreglur laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og innkaupareglur Fjarðabyggðar. Bæjarráð felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu ásamt fjármálastjóra að hefja vinnu við það þannig að nýir samningar geti tekið gildi frá og með 1. janúar 2027.

  5. 5. Fyrirspurn um útboð sept 2026

    Mál 2609227 Allur ferill málsins

    Framlagt að nýju erindi frá ÍS - Travel vegna útboða á skólaakstri fyrir árið 2026. Bæjarstjóra falið að svara erindi bréfritara í samræmi við umræður á fundinum.

  6. 6. Viljayfirlýsing - Heima 60 ára og eldri

    Mál 2610096 Allur ferill málsins

    Framlögð kynning á uppbyggingu íbúða fyrir 60 ára og eldri. Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins og málið verði tekið fyrir að nýju á næsta fundi.

  7. 7. Atvinnumál

    Mál 2609283 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála vegna ýmissa atvinnuþróunarverkefna.

  8. 8. Fjárlög 2027

    Mál 2610097 Allur ferill málsins

    Umræða um áhrif fjárlaga 2027 á Fjarðabyggð. Sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs falið að taka saman minnisblað um áhrif boðaðra fjárlaga í Fjarðabyggð og leggja fyrir bæjarráð.

  9. 9. Fundur með leigufélaginu Bríet

    Mál 2511118 Allur ferill málsins

    Iða Marsibil Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Leigufélagsins Bríetar mætir á fund bæjarráðs kl. 10:00 og fór yfir samstarfsverkefni félagsins og Fjarðabyggðar.

  10. 10. Náma í Björgum við Reyðarfjörð

    Mál 2610064 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi GYG vegna námuvinnslu á Reyðarfirði. Sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs falið að svara erindinu á grundvelli fyrri svara sveitarfélagsins.

  11. 11. Gjaldskrá félagsheimila 2027

    Mál 2609186 Allur ferill málsins

    Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá félagsheimila samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórn leggur til að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2027.

  12. 12. Gjaldskrá safna 2028

    Mál 2610001 Allur ferill málsins

    Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá safna 2028 samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórn leggur til að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2028.

  13. 13. Þjóðaróperan 2026 - samstarf

    Mál 2610045 Allur ferill málsins

    Vísað frá fundi stjórnar Menningarstofu tillögu að viljayfirlýsingu milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og Þjóðaróperunnar um undirbúning samstarfs við óperuna um stærri sýningar og árlegt fræðsluverkefni í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningnum, og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  14. 14. Boð á fund umhverfis- og samgöngunefndar

    Mál 2610068 Allur ferill málsins

    Óskað hefur verið eftir því að Fjarðabyggð sendi fulltrúa á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þriðjudaginn 13. október þar sem fjallað verður um 4. mál - Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.

    Bæjarstjóri mun sækja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  15. 15. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026

    Mál 2602129 Allur ferill málsins

    Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 7. september 2026 lögð fram til kynningar

  16. 16. Stjórn menningarstofu - 43

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 43. fundar stjórnar Menningarstofu lögð fram til staðfestingar

    1. 16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
    2. 16.2 Gjaldskrá félagsheimila 20272609186
    3. 16.3 Gjaldskrá safna 20282610001
    4. 16.4 Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands2608283
    5. 16.5 Ástandsskoðun Safnahússins í Neskaupstað2609282
    6. 16.6 Boð um gjöf á safngripum til stríðsárasafns2609306
    7. 16.7 Þjóðaróperan 2026 - samstarf2610045
  17. 17. Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 9

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 9. fundar starfshóps um íþróttahús á Eskifirði lögð fram til staðfestingar.