Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2026

Skólaakstur endurnýjun samninga 2026-2029

Mál 2607025 Fyrst á dagskrá 13. júlí 2026, síðast 21. október 2026. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 21. október 2026, frá 0:16:48

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2026

    Bæjarráð, fundur 951 liður 3

    Lögð fram tillaga að framlengingu samninga um aksturs skólabarna.

    Bæjarráð samþykkir að samningur Fjarðabyggðar og Tanna travel ehf. um akstur skólabarna verði framlengdur til næstu tveggja skólaára, 2026 til 2027 og 2027 til 2028.

  2. Bæjarstjórn, fundur 419 liður 7.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 951“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 964 liður 4

    Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna stöðu samninga um skólaakstur.

    Lesa alla bókunina (131 orð til viðbótar)

    Í ljósi annmarka sem komið hafa fram í ferli varðandi framlengingu samninga um akstur skólabarna í Fjarðabyggð, og þeirrar niðurstöðu úr samtölum við núverandi akstursaðila að best fari á því að fella úr gildi núverandi samkomulag um aksturinn samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi um gagnkvæm samningslok við Tanna Ferðaþjónustu ehf. frá 31. desember 2026 sem tryggi órofna þjónustu fram að áramótum og feli jafnframt í sér fullt og endanlegt uppgjör á milli aðila.

    Samhliða samþykkir bæjarráð að hefja þegar í stað formlegan undirbúning að nýju innkaupaferli skólaakstursþjónustu sveitarfélagsins í samræmi við meginreglur laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og innkaupareglur Fjarðabyggðar. Bæjarráð felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu ásamt fjármálastjóra að hefja vinnu við það þannig að nýir samningar geti tekið gildi frá og með 1. janúar 2027.

  4. Bæjarstjórn, fundur 423 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 964“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 423. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:16:48 mál tvö fjögur og tvö fimm það er þarna skólahakstur endurnýjun samninga þarna er í raunverðum mál þar sem koma á hins vegar annmarkað nærri í ferlinu varðandi framlenginguna á þessum samning þarna með efstu skólabarna kerfið og það hefur verið tekin ákvörðun um að þá losa þessa samninga í ljósi þessa og fara þá í útboð núna á næstunni sem er auðvitað jákvætt að
    • 0:17:44 það sé gert á þennan hátt núna og svo sem bara ítreka það að eins og kom fram að það á að fara í útboð á þessum skólastri að það sé gert tímalega við vitum það að þau geta verið flókin geta tekið langan tíma íslensknir þegar þau leysa út út þannig að það er nauðsynlegt að við förum í þetta réttum tíma