Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 951

13. júlí 2026, kl. 09:00 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 419 liður 7

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. júlí lögð fram til kynningar.Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Nýting glatvarma frá Alcoa með varamaskipti

    Mál 2607041 Allur ferill málsins

    Kynning á meistaraverkefni sem fjallar um uppsetningu á varmaskipti til að nýta glatvarma frá Alcoa á Reyðarfirði.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027

    Mál 2603185 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur frá nefndum og ráðum vegna fjárhagsáætlunar 2027.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

  3. 3. Skólaakstur endurnýjun samninga 2026-2029

    Mál 2607025 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að framlengingu samninga um aksturs skólabarna.

    Bæjarráð samþykkir að samningur Fjarðabyggðar og Tanna travel ehf. um akstur skólabarna verði framlengdur til næstu tveggja skólaára, 2026 til 2027 og 2027 til 2028.

  4. 4. Almenningssamgöngur Suðurfirðir

    Mál 2607028 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs minnisblaði um almenningssamgöngur á Suðurfjörðunum með tillögum að breytingum til að styðja við félags- og tómstundastarf barna.

    Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að hefja viðræður við samningsaðila um mögulegar útfærslur á kerfinu. Málið tekið fyrir að nýju.

  5. 5. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2026

    Mál 2607045 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði sem óska eftir smölun lands síns.

    Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að rannsaka og meta aðstæður á vettvangi og upplýsa bæjarráð.

  6. 6. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa

    Mál 2212036 Allur ferill málsins

    Fjallað um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að leggja til breytingu á reglum með vísan til umræðna á fundi. Endurskoðaðar reglur lagðar fyrir á næsta fundi til staðfestingar.

  7. 7. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá

    Mál 2002092 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn vegna hönnunar á jafnhættulínum vegna ofanflóðavarna Grjótár á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir fundi Veðurstofu.

  8. 8. Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga

    Mál 2607052 Allur ferill málsins

    Erindi vegna stefnumótunar lagt fram til kynningar

  9. 9. Auka aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga

    Mál 2607065 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

  10. 10. Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði

    Mál 2604231 Allur ferill málsins

    Máli lyft upp úr fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar til frekari vinnslu hjá bæjarráði.

  11. 11. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 62

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 3. júlí tekin til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar að undanskildum lið 2 í fundargerð.

    1. 11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20272606170
    2. 11.2 Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði2604231
  12. 12. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 63

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 10. júlí tekin til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.

    1. 12.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20272606170
    2. 12.2 Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita - Jarðhiti jafnar leikinn -2503223
    3. 12.3 Ný niðurdælingahola á Eskfirði2607043
    4. 12.4 Framkvæmdaleyfi - Streitishvarf vegtenging og bílastæði2607063