Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 950

6. júlí 2026, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 419 liður 6

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. júlí lögð fram til kynningar.Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Innleiðing umsóknarviðmóts byggingarleyfa

    Mál 2606230 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf Húsnæðis og mannvirkjastofnunar um innleiðingu á umsóknum fyrir byggingarleyfi þar sem gert er ráð fyrir að sveitarfélög hafi lokið innleiðingu fyrir árslok 2026.

  2. 2. Framboð til stjórnar sambandsins

    Mál 2606231 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi kjörnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjörs stjórnar sambandsins. Á næsta landsþingi Sambandsins verður kosin ný stjórn í samræmi við samþykktir þess.

  3. 3. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa

    Mál 2212036 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar greining á kjörum hjá kjörnum fulltrúum í áþekkum sveitarfélögum.

    Bæjarráð vísar umræðu til næsta fundar.

  4. 4. Nýja svæði Dreka

    Mál 2603166 Allur ferill málsins

    Fjallað um beiðni Skotíþróttafélagsins Dreka um afnot af skotæfingasvæði.

    Bæjarráð óskar eftir að fulltrúar félagsins mæti á fund þess til að fara yfir málefni þess.

  5. 5. Kynning á starfsemi Samtaka orkusveitarfélaga og álagningu orkumannvirkja

    Mál 2501124 Allur ferill málsins

    Framlagður kynningarbæklingur um starfsemi, hlutverk og áherslur Samtaka orkusveitarfélaga og samantekt um stöðu máls varðandi skattlagningu orkumannvirkja.

  6. 6. Stjórn menningarstofu - 39

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 29. júní lögð fram til staðfestingar.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð stjórnar menningarstofu.

    1. 6.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195