Bæjarráð, fundur 949
29. júní 2026, kl. 08:30 til 10:50, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 419 liður 5
Fundargerð bæjarráðs frá 29. júní lögð fram til kynningar.Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Ragnar Sigurðsson fór yfir helstu mál sem tekin voru fyrir á fundum bæjarráðs í sumar. Jafnframt tóku Stefán Þór Eysteinsson, Kristinn Þór Jónasson, Hrafn Bjarnason til máls.
Dagskrá
-
1. Franskir Dagar ''26
Mál 2507107 Allur ferill málsins
Farið yfir undirbúning vegna vinarbæjarheimsóknar fulltrúa Gravelines til Fjarðabyggðar á Franska daga. Fulltrúar frá vinarbæ Fjarðabyggðar, Gravelines í Frakklandi, munu heimsækja Fjarðabyggð dagana 16.til 19. júlí 2026.
Bæjarráð samþykkir að oddvitar flokkanna ásamt bæjarstjóra skipuleggi viðverum og þátttöku fulltrúa Fjarðabyggðar í heimsókninni.
-
2. Boð á íslendingadaga í Gravelines
Mál 2606178 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá sveitarfélaginu Gravelines þar sem fulltrúum Fjarðabyggðar er boðið til Íslendingadaga sem fram fara 25. til 28. september í Gravelines.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar að skipuleggja ferðina.
-
3. Uppfærð bæjarskilti
Mál 2605176 Allur ferill málsins
Kynnt vinna við uppfærslu bæjarskilta í Fjarðabyggð sem hefur verið unnið í samstarfi við Sigurð Val, hönnuð skiltanna og Skiltaval ehf vegna prentunar og uppsetningar. Upprunaleg hönnun skiltanna er frá því fyrir tæpum tíu árum.
-
4. Sterkur Stöðvarfjörður 2026
Mál 2605171 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður, sem er hluti af verkefninu Brothættar byggðir en því lýkur í lok ársins. Gert ráð fyrir að Fjarðabyggð leiði verkefnið og haldi utan um markmið þess í um eitt ár eftir að fjármögnun Byggðastofnunar lýkur.
Bæjarráð samþykkir að bæjarráð fylgi verkefninu eftir með fulltrúum í stýrihópnum reglubundið næsta ár.
-
5. Verðskrá móttöku- og söfnunarstöðva
Mál 2602112 Allur ferill málsins
Fjallað um verðskrá Kubbs vegna úrgangsflokka á móttöku- og söfnunarstöðvum sem lögð er til umsagnar fyrir bæjarráð.
Gjaldskráin mun taka gildi 1. ágúst 2026 og falla þá úr gildi eldri klippikort útgefin af Fjarðabyggð en Kubbur ehf. mun taka við sölu klippikorta og innheimtu á móttökustöðum til samræmis við útboð úrgangsþjónustu. Eigendur klippikorta útgefnum af Fjarðabyggð geta fengið endurgreiðslu ónýttra heimilda á bæjarskrifstofu.
-
6. Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Mál 2603168 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs fjármögnun á flutningi Vinasels - frístundar Nesskóla skólaárið 2026 til 2027.
Bæjarráð samþykkir kostnað vegna ráðstafana við flutning Vinasels og vísar fjármögnun hans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
-
7. Neyðarskýli - félagsþjónusta
Mál 2606160 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu stofnunar tveggja smáhýsa til félagslegrar búsetu.
Bæjarráð samþykkir kostnað vegna stofnunar tveggja smáhýsa til félagslegra búsetu og vísar fjármögnun hans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026. Fjölskyldusvið ásamt skipulags- og framkvæmdasviði falið að vinna að málinu áfram og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.
-
8. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir og útfærslu ofanflóðavarna í Nes- og Bakkagiljum.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri komi á framfæri sjónarmiðum bæjarráðs vegna útfærslu varna.
-
9. Ósk um gjaldfrjálsa notkun á Egilsbúð
Mál 2606206 Allur ferill málsins
Bréf frá Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir styrk til að halda afmælishátíð skólans í Egilsbúð í september.
Bæjarráð samþykkir að styrkja skólann sem nemur afnotum af Egilsbúð fyrir afmælishátíð skólans. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
-
10. Breytt ábyrgðarskipting í málefnum barna með fjölþættan vanda
Mál 2606194 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélga vegna samnings um börn með fjölþættan vanda.
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð
mennta- og barnamálaráðuneytisins um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025.
Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
-
11. Skipun öldungaráða
Mál 2606189 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi frá Landssamband eldri borgara (LEB) þar sem sambandið minnir á að samkvæmt lögum nr.125/1999 um málefni aldraðra ber sveitarfélögum að skipa öldungaráð.
-
12. Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Mál 2606185 Allur ferill málsins
Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS) fyrir 2025 lagður fram til kynningar.
-
13. Ársreikningur orkusveitarfélaga 2025 til kynningar
Mál 2606186 Allur ferill málsins
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga (SO) fyrir 2025 lagður fram til kynningar.
-
14. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Mál 2606183 Allur ferill málsins
Fundargerð 98. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lögð fram til kynningar
-
15. Ársfundur 2026
Mál 2604035 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar gögn frá ársfundi StarfA sem haldin var 29. apríl sl.
-
16. Ungmennaráð - 25
Fundargerð ungmennaráðs frá 20. maí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð ungmennaráðs.
-
17. Öldungaráð - 27
Fundargerð öldungaráðs frá 18. maí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð öldungarráðs.
- 17.1 Fyrirspurn öldungaráðs vegna garðsláttarþjónustu2605112
- 17.2 Tillaga um fjölgun fulltrúa eldra fólks í öldungaráði og kjörtímabil þeirra2605117
- 17.3 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
- 17.4 Kynning á fyrirkomulagi námskeiða fyrir eldra fólk2604167
-
18. Fjölskyldunefnd - 61
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 24. júní lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð fjölskyldunefndar.
- 18.1 Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-20272603168
- 18.2 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
- 18.3 Neyðarskýli - félagsþjónusta2606160
- 18.4 Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 20262606142
- 18.5 Fagráð Barnaverndarþjónustu Fjarðarbyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar2606012
- 18.6 Ungmennaráð - 252605010F
- 18.7 Öldungaráð - 272605009F