Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirÖldungaráð

Öldungaráð, fundur 27

18. maí 2026, kl. 14:00 til 16:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Helga Sól Birgisdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ólafur Helgi Gunnarsson, formaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
  • Árni Þórhallur Helgason, aðalmaður
  • Jórunn Bjarnadóttir, aðalmaður
  • Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Þórarinn Viðfjörð Guðnason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Sól Birgisdóttir, ritari

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Fjölskyldunefnd, fundur 61 liður 7

    Fundargerð öldungaráðs frá 18. maí 2026 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarráð, fundur 949 liður 17

    Fundargerð öldungaráðs frá 18. maí lögð fram til staðfestingar.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð öldungarráðs.

Dagskrá

  1. 1. Fyrirspurn öldungaráðs vegna garðsláttarþjónustu

    Mál 2605112 Allur ferill málsins

    Öldungaráð þakkar fyrir svarið frá Sláttugenginu og felur starfsmanni að kynna sér aðra valkosti varðandi garðslátt.

  2. 2. Tillaga um fjölgun fulltrúa eldra fólks í öldungaráði og kjörtímabil þeirra

    Mál 2605117 Allur ferill málsins

    Fulltrúar öldungaráðs samþykkja tillögu að fjölga fulltrúum eldra fólks í ráðinu úr þremur í fimm eða fleiri og fjölga varafulltrúum til samræmis. Talið er að það styrki samráð og upplýsingaflæði milli öldungaráðs og eldri íbúa sveitarfélagsins, þannig að tryggð verði sem best þátttaka og samfella í störfum ráðsins. Fulltrúar samþykkja einnig tillögu að skýrari ákvæði um kjörtímabil fulltrúa þar sem það kemur ekki fram í gildandi reglum eða erindisbréfi ráðsins.

  3. 3. Starfsáætlun öldungaráðs

    Mál 2411169 Allur ferill málsins

    Starfsáætlun rýnd og farið yfir verkefnastöðu.

  4. 4. Kynning á fyrirkomulagi námskeiða fyrir eldra fólk

    Mál 2604167 Allur ferill málsins

    Fulltrúar ráðsins þakka Hrafnhildi fyrir samtalið og fagna því að sveitarfélagið ætli að auka félags- og tómstundarstarf eldra fólks í samstarfi við Janusar verkefnið, félög eldra fólks og öldungaráð.