Bæjarráð, fundur 952
20. júlí 2026, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 419 liður 8
Fundargerð bæjarráðs frá 20. júlí lögð fram til kynningar.Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Mál 2603185 Allur ferill málsins
Framhaldið umræðu um mótun ramma fyrir fjárhagsáætlun ársins 2026 út frá tekjuspá og tillögum nefnda um breytingar á milli á ára.
Bæjarráð vísar vinnu við gerð áætlunar til síðari hluta ágústmánaðar þar sem endanlegir rammar verða gefnir út.
-
2. Kaup á nýrri slökkvibifreið
Mál 2607106 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga slökkviliðsstjóra um kaup á nýrri slökkvibifreið fyrir Suðurfirði sem fjármögnuð yrði með styrkveitingu Fiskeldissjóðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu slökkviliðsstjóra.
-
3. Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar
Mál 2607093 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að staðsetningu loftræstisamstæðu í Fjarðabyggðarhöllinni ásamt tillögu að útfærslu loftræstingarinnar. Tillagan gerir ráð fyrir að samstæðan verði við enda hlaupabrautar við hlið sandgrifju.
Bæjarráð samþykkir staðsetningu samstæðunnar og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að leggja tillöguna fyrir Ungmennafélagið Val, KFA og FHL.
-
4. Ábendingaapp Fjarðabyggðar
Mál 2607101 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur og gögn Markaðsdeildar um tilboð í gerð íbúaapps fyrir Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að innleitt verði ábendingakerfi sem sé hluti af íbúaappi Fjarðabyggðar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við fyrirtækið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
-
5. Reglur um launakjör kjörinna fulltrúa
Mál 2607086 Allur ferill málsins
Framlagðar endurskoðaðar reglur um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tillögu að nýjum reglum um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
-
6. Orkuöflun Njörvadalsár og Geithúsaár
Mál 2607085 Allur ferill málsins
Framlagðar og kynntar hugmyndir um nýtingu vatnsorku úr Njörvadalsá og Geithúsaá á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
-
7. Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Mál 2604231 Allur ferill málsins
Máli lyft upp úr fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar til frekari vinnslu hjá bæjarráði.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Fjarðabyggðar samþykkir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Dalur 1 verði auglýst með breytingum í samræmi við umræður fundarins.
-
8. Umferðarsamþykkt
Mál 2504048 Allur ferill málsins
Framlögð til umræðu gildandi umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð.
Tekið fyrir að nýju.
-
9. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2026
Mál 2607045 Allur ferill málsins
Tekin fyrir greinargerð skipulags- og framkvæmdasviðs um ágang sauðfjár á landi Óseyrar við Stöðvarfjörð. Vettvangsferð leiddi í ljós að sauðfé var ekki í landi Óseyrar.
-
10. Erindi landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs
Mál 2607045 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi landeiganda Óseyrar vegna ágangs búfjár.
-
11. Fjölskyldunefnd - 62
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. júlí tekin til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð fjölskyldunefndar.
- 11.1 Innra mat grunnskóla skólaárði 2025-20262606216
- 11.2 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
- 11.3 Almenningssamgöngur suðurfirðir2607028
- 11.4 Breytt ábyrgðarskipting í málefnum barna með fjölþættan vanda2606194
- 11.5 Heil Heim - beiðni um styrk2607030