Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 953

29. júlí 2026, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 419 liður 9

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. júlí lögð fram til kynningar.Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst

    Mál 2607049 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar að kjörfundarstöðum og opnunartíma þeirra vegna Þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst n.k.

    Sólbrekka í Mjóafirði.

    Nesskóli í Neskaupstað.

    Eskifjarðarkirkja á Eskifirði.

    Safnaðarheimilið á Reyðarfirði.

    Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði.

    Grunnskólinn á Stöðvarfirði.

    Grunnskólinn á Breiðdalsvík.

    Kjörfundur á ofangreindum kjörstöðum verði frá kl. 09:00 til 22:00 nema í Mjóafirði verði reynt að loka kl. 14:00.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tillögu yfirkjörstjórnar að kjörstöðum og opnunartímum þeirra. Jafnframt er bæjarstjóra falið að vinna að gerð kjörskrár vegna kosninganna.

  2. 2. Búrfjárbeit og ágangur búfjár

    Mál 2606212 Allur ferill málsins

    Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár lagðar fram til kynningar

  3. 3. Aðalfundur Leigufélagsins Bríetar

    Mál 2607149 Allur ferill málsins

    Boðað er til aðalfundar Leigufélagsins Bríetar ehf, þann 18. ágúst 2026, kl. 12:00 hjá HMS í Borgartúni 21 eða á fjarfundi.

    Bæjarráð felur Ragnari Sigurðssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalafundinum.

  4. 4. Lögreglusamþykkt

    Mál 2607120 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um lögreglusamþykkt Fjarðabyggðar.

    Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu.

  5. 5. Umferðarsamþykkt

    Mál 2504048 Allur ferill málsins

    Framlögð til umræðu gildandi umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð.

    Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu.

  6. 6. Frystihússbryggja Eskifjörður

    Mál 2606149 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála vegna dýpkunarframkvæmda og þau gögn og tölur sem borist hafa.

    Bæjarráð samþykkir að gengið sé til samninga við Hagtak hf. og felur bæjarstjóra undirritun samnings um verkið.

  7. 7. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 64

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. júlí lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.

    1. 7.1 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík2510022
    2. 7.2 Ósk um leyfi til að mála mynd á vegg Ljósárvirkjunar2606163
    3. 7.3 Aðkoma að Tröllavegi í Neskaupastað2606171
    4. 7.4 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá2002092
    5. 7.5 Deiliskipulag Grjótá og Miðbær Eskifjarðar2607090
    6. 7.6 Framkvæmdaleyfi efnistaka Melur utan vegar við Hrafná2607031
    7. 7.7 Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði2605146
    8. 7.8 Brekkugata jarðvinna og lagnir - Verðkönnun2607094
    9. 7.9 Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar2607093
  8. 8. Hafnarstjórn - 343

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. júlí tekin til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð hafnarstjórnar.

    1. 8.1 Frystihússbryggja Eskifjörður - Undirbúningur dýpkunar2606149
    2. 8.2 Steypt athafnasvæði á milli Strandarbryggju og flokkarahúss Hafnargötu 12607102
    3. 8.3 Seatrade Cruise Med 20262607152
    4. 8.4 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20262601118
    5. 8.5 Umsögn um áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum2606158