Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 954

10. ágúst 2026, kl. 08:30 til 10:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 419 liður 10

    Fundargerð bæjarráðs frá 10. ágúst lögð fram til kynningar.Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2026-2030

    Mál 2608040 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Þuríðar Lillýjar Sigurðardóttur um leyfi frá störfum sem kjörinn fulltrúi frá 9. til 26. ágúst.

    Lögð er fram tillaga um að Birgir Jónsson taki við varaformennsku í bæjarráði meðan á leyfi Þuríðar stendur og samþykkti fundurinn það. Tók Birgir við stjórn fundar.

  2. 2. Umsókn og staðfesting á stofnframlagi til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum

    Mál 2608039 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að umsókn um stofnframlag til kaupa á almennri íbúð vegna umsóknar Brákar íbúðafélags hses. grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Um er að ræða kaupa á einni íbúð við Móbakka 16 fyrir tekju-og eignalága.

    Samþykkt er að Fjarðabyggð leggi til áskilið stofnframlag sveitarfélags vegna kaupanna.

    Bæjarráð óskar eftir fundi með fulltrúa Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna málefna leigufélaganna.

  3. 3. Stjórnsýslukæra vegna málsmeðferðar - Óseyri í Stöðvarfirði

    Mál 2607166 Allur ferill málsins

    Framlögð stjórnsýslukæra Ívars Ingimarssonar og Hrefnu D. Arnardóttur vegna ágangs búfjár á jörðinni Óseyri.

    Bæjarritara falið að svara kærunni.

  4. 4. Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b

    Mál 2606050 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hlíðarenda á Eskifirði, Strandgata 77B. Ekki bárust athugasemdir.

    Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar samþykkir óverulega breytingu deiliskipulagsins Hlíðarendi á Eskifirði ásamt því að staðfesta niðurstöðu grenndarkynningar.

  5. 5. Grenndarkynning Mógerði 5

    Mál 2605151 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Bakkagerði 1 á Reyðarfirði, Mógerði 3. Ekki bárust athugasemdir.

    Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar samþykkir óverulega breytingu deiliskipulagsins Bakkagerði 1 á Reyðarfirði ásamt því að staðfesta niðurstöðu grenndarkynningar.

  6. 6. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá

    Mál 2002092 Allur ferill málsins

    Fundur haldinn með fulltrúum Veðurstofunnar vegna áhættumats og afmörkun á jafnhættulínum vegna ofanflóðavarna á Eskifirði og Norðfirði.

  7. 7. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 65

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 6. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og

    framkvæmdanefndar.

    1. 7.1 Byggingarleyfi Strandgata 77B, viðbygging, 735 Eskifjörður2604048
    2. 7.2 Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b2606050
    3. 7.4 Framkvæmdaleyfi vegaframkvæmdir við Helgustaðará2607158
    4. 7.5 Grenndarkynning Mógerði 52605151
    5. 7.6 Framkvæmdaleyfi Bleiksárfoss2608030