NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 64
21. júlí 2026, kl. 15:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
- Hafþór Eiríksson, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 953 liður 7
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. júlí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.
Dagskrá
-
1. Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Mál 2510022 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðuna á þakviðgerðum á Grunnskólanum á Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
2. Ósk um leyfi til að mála mynd á vegg Ljósárvirkjunar
Mál 2606163 Allur ferill málsins
Ósk um leyfi til að mála mynd á vegg Ljósárvirkjunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið en óskar eftir að fá endanlega útfærslu á listverkinu áður en verkið er unnið.
-
3. Aðkoma að Tröllavegi í Neskaupastað
Mál 2606171 Allur ferill málsins
Bréf frá íbúa um aðkomu að Tröllavegi frá Hafnarbraut og Strandgötu í Neskaupstað lagt fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að láta framkvæma aksturferlagreiningu og leggja niðurstöður greiningarinnar fyrir fund að nýju.
-
4. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Mál 2002092 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar hönnun ofanflóðamannvirkja vegna Grjótár á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða hönnun og vísar henni til deiliskipulagsgerðar útkaupstaðar á Eskifirði.
-
5. Deiliskipulag Grjótá og Miðbær Eskifjarðar
Mál 2607090 Allur ferill málsins
Deiliskipulag Grjótá og Miðbær Eskifjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar tillögunni til áframhaldandi vinnu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa og að tillagan verði lögð fyrir nefndina að nýju til auglýsingar.
-
6. Framkvæmdaleyfi efnistaka Melur utan vegar við Hrafná
Mál 2607031 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi efnistaka Melur utan vegar við Hrafná. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
-
7. Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði
Mál 2605146 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Holtahverfi sem varðar lóðina Gilsholt 2 þar sem byggingarreitur er stækkaður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir Gilsholti 1 og 4 og leggja fyrir fund að nýju.
-
8. Brekkugata jarðvinna og lagnir - Verðkönnun
Mál 2607094 Allur ferill málsins
Lagðar fram niðurstöður verðkönnunar vegna jarðvinnu og lagna vegna Brekkugötu á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir niðurstöður verðkönnunar og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ganga frá samningi við Dal-björg og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
-
9. Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar
Mál 2607093 Allur ferill málsins
Kynning á stöðu hönnunar á loftræstikerfi Fjarðarbyggðarhallarinnar. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar kynninguna.