Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 62

8. júlí 2026, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varaformaður
  • Valborg Ösp Árnadóttir Warén, aðalmaður
  • Anna Guðný Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Alma Eiðsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 952 liður 11

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. júlí tekin til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð fjölskyldunefndar.

Dagskrá

  1. 1. Innra mat grunnskóla skólaárði 2025-2026

    Mál 2606216 Allur ferill málsins

    Vinna við innra mat í grunnskólum Fjarðabyggðar skólaárið 2025-2026 kynnt, ásamt skýrslum skólanna um innra mat og umbótaáætlunum. Fjölskyldunefnd fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið við innra mat grunnskóla Fjarðabyggðar skólaárið 2025?2026 og gerð umbótaáætlana. Nefndin telur ánægjulegt að sjá markvissa sjálfsmatsvinnu og skýra sýn á áframhaldandi umbætur sem styðja við gæði skólastarfs og farsæld nemenda. Nefndin þakkar starfsfólki skólanna fyrir faglegt og metnaðarfullt starf.

  2. 2. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027

    Mál 2602108 Allur ferill málsins

    Starfsáætlun fjölskyldunefndar fyrir 2027 lögð fram til samþykktar. Fjölskyldunefnd samþykkir starfsáætlun fjölskyldunefndar og vísar áfram til umræðu í bæjarráði.

  3. 3. Almenningssamgöngur suðurfirðir

    Mál 2607028 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um almenningssamgöngur á Suðurfjörðunum með tillögum að breytingum til að styðja við félags- og tómstundastarf barna. Fjölskyldunefnd samþykkir að vísa málinu áfram til bæjarráðs til viðaukagerðar.

  4. 4. Breytt ábyrgðarskipting í málefnum barna með fjölþættan vanda

    Mál 2606194 Allur ferill málsins

    Samband Íslenskra sveitarfélags vekur athygli á reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem að mati þeirra gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda.

  5. 5. Heil Heim - beiðni um styrk

    Mál 2607030 Allur ferill málsins

    Samtökin Fræðsla og forvarnir (FRÆ) fara nú af stað með árlegt forvarna- og fræðsluverkefni eins og síðustu 20 ár.

    Vímuefnaakstur fer vaxandi og skapar mikla hættu í umferðinni. Við þessu þarf að bregðast, enda um að ræða dauðans alvöru.

    Átakið í ár snýr því að ölvunarakstri og heitir ?Heil heim - Hugsaðu um þig og þína - ökum aldrei ölvuð!?

    Sérstök áhersla er lögð á ábyrgð ökumanna gagnvart sjálfum sér og öðrum og ábyrgð okkar allra í að koma í veg fyrir akstur undir áhrifum ávana- og vímuefna.