Stjórn menningarstofu, fundur 43
5. október 2026, kl. 16:00 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Bjarney Birta Bergsdóttir, varamaður
- Júlíus Óli Jacobsen, aðalmaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 964 liður 16
Fundargerð 43. fundar stjórnar Menningarstofu lögð fram til staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 423 liður 8
Fundargerð 43. fundar stjórnar menningarstofu lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Birgir Jónsson, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð 43. fundar stjórnar menningarstofu er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Mál 2603195 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarmálaflokkinn vegna ársins 2027.
Stjórn samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
-
2. Gjaldskrá félagsheimila 2027
Mál 2609186 Allur ferill málsins
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá félagsheimila samhliða fjárhagsáætlunargerð.
Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2027. Gjaldskrá er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
-
3. Gjaldskrá safna 2028
Mál 2610001 Allur ferill málsins
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá safna samhliða fjárhagsáætlunargerð.
Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2028. Stjórn áréttar að ársmiði í söfn Fjarðabyggðar gildir innan almanaksársins.
Gjaldskrá er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
-
4. Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
Mál 2608283 Allur ferill málsins
Fjallað áfram um samning Fjarðabyggðar og Sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju um afnot og þjónustu í Tónlistarmiðstöð í kjölfar fundar formanns og forstöðumanns menningarstofu með sóknarnefnd. Vísað til áframhaldandi vinnu um endurskoðun samnings.
-
5. Ástandsskoðun Safnahússins í Neskaupstað
Mál 2609282 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar ástandsskoðun á Safnahúsinu í Neskaupstað. Hafnarstjórn er með málið til úrvinnslu og greiningar á kostnaði vegna endurbóta húsnæðisins.
-
6. Boð um gjöf á safngripum til stríðsárasafns
Mál 2609306 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um safngripi sem boðnir eru Íslenska stríðsárasafninu að gjöf. Baldur J Baldursson hefur boðið safninu að gjöf fatnað sem tengist stríðsárunum og hernáminu.
Stjórn menningarstofu samþykkir að þiggja góðar gjafir og færir Baldri bestu þakkir fyrir þær.
-
7. Þjóðaróperan 2026 - samstarf
Mál 2610045 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að viljayfirlýsingu milli Menningarstofu og Þjóðaróperunnar um undirbúning samstarfs við Þjóðaróperuna um stærri sýningar og árlegt fræðsluverkefni í Fjarðabyggð.
Stjórn tekur vel í yfirlýsinguna og felur bæjarritara og forstöðumanni að vinna hana áfram og leggja fyrir næsta fund stjórnar til samþykktar.