Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 42

15. september 2026, kl. 14:15 til 16:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Tanja Tómasdóttir, varaformaður
  • Júlíus Óli Jacobsen, aðalmaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 961 liður 9

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 422 liður 7

    Fundargerð 42. fundar stjórnar Menningarstofu frá 15. september tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð 42. fundar stjórnar Menningarstofu er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027

    Mál 2603195 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að útfærslu á fjárhagsáætlun miðað við rammaúthlutun frá bæjarráði.

    Sviðsstjóra falið að vinna áfram að áætlunargerðinni og leggja fyrir stjórn endanlega útfærslur.

  2. 2. Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2607073 Allur ferill málsins

    Farið yfir framgang annars áfanga og tímasetningar vegna afhendingar á húsnæði. Farið yfir kostnaðargreiningu verkefnis.

  3. 3. Verkefni menningarstofu 2026

    Mál 2602053 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla forstöðumanns um lista- og menningarhátíðina Innsævi sem og yfirlit yfir annað menningarstarf á liðnu sumari ásamt því sem framundan er.