Bæjarráð, fundur 961
21. september 2026, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Kristinn Þór Jónasson, varamaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 422 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 960, 961., og 962. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerðir bæjarráðs nr. 960, 961 og 962, utan liðar 4 í fundargerð 961, eru staðfestar með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sjálfvirknivæðing móttöku og símsvörunar 2026
Mál 2609028 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga bæjarritara að sjálfvirknivæðingu þjónustu afgreiðslu á bæjarskrifstofum.
Bæjarráð felur starfsmönnum á skrifstofu bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja það fyrir að nýju.
-
2. Samskiptaáætlun - haust ''26
Mál 2609183 Allur ferill málsins
Fjarðabyggð vinnur eftir samskiptaáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Upplýsingafulltrúi lagði fram og kynnti fjögurra mánaða útfærslu áætlunarinnar fyrir september til desember 2026 sem unnin var með hliðsjón af samskiptaáætluninni og vörumerkjahandbók Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir framlagða útfærslu samskiptaáætlunar og vísar henni til úrvinnslu upplýsingafulltrúa.
-
3. Þjónustukönnun 2026
Mál 2609189 Allur ferill málsins
Undanfarin ár hefur Gallup mælt viðhorf íbúa til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins. Framlagt boð Gallup um þáttöku í könnuninn árið 2026.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í þjónustukönnuninni fyrir árið 2026.
-
4. Beiðni um gjaldfrjáls afnot af Íþróttahúsi Reyðarfjarðar vegna Þorrablóts 2027
Mál 2609172 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Þorrablótsnefndar um styrk vegna húsaleigu vegna afnota af íþróttahúsinu á Reyðarfirði vegna Þorrablóts Reyðfirðinga 2027.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn afnotum af húsnæðinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21-690.
-
5. Til umsagnar 4. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Mál 2609198 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón).
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggða á fyrri umsögnum Fjarðabyggðar. Frestur til að skila umsögn er til 1. október nk.
-
6. Til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
Mál 2609206 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggða á fyrri umsögnum Fjarðabyggðar.
-
7. Áskorun - Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Mál 2609187 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Starfsgreinasambandinu um áherslur kjarasamninga vorið 2024 um að lögð verði rík áhersla að skapa efnahagslegan stöðugleika.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
-
8. Kjaramál og efnahagslegur stöðugleiki
Mál 2609168 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Verslunarfélagi Reykjavíkur, Landssambandi íslenskra verslunarmanna og Rafiðnarsambandinu um áherslur efnahagslegan stöðugleika.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
-
9. Stjórn menningarstofu - 42
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. september lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
- 9.2 Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2607073
- 9.3 Verkefni menningarstofu 20262602053