Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 962

29. september 2026, kl. 10:30 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 422 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 960, 961., og 962. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 960, 961 og 962, utan liðar 4 í fundargerð 961, eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar

    Mál 2607093 Allur ferill málsins

    Niðurstaða útboðs á uppsetningu loftræstingar í Fjarðabyggðarhöllina. Sviðsstjóri mætir á fundinn og fór yfir niðustöðu útboðsins.

    Tvö tilboð bárust í verkið:

    Launafl EHF - 92.447.717

    Borg byggingarlausnir - 126.410.466

    Kostnaðaráæltun verksins er 100.000.000

    Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðenda, Launafls og felur bæjarstjóra undirritun samnings um verkið. Bæjarráð leggur áherslu á að tímaáætlanir verksins standist.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027

    Mál 2603185 Allur ferill málsins

    Yfirferð á stöðu mála við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

    Bókun bæjarráðs:

    Fjarðabyggð samþykkir að hækkanir almennra gjaldskráa í rekstri A-hluta sveitarfélagsins á árinu 2027 verði ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%. Forsenda þess er að gildandi kjarasamningar haldi. Til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti og bæta hag heimilanna þurfa allir að taka höndum saman.

    Skorað er á ríkisvaldið og stofnanir þess að fylgja góðu fordæmi sveitarfélaganna og takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álögur á heimilin. Sameiginlegt aðhald og ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins eru lykilforsendur þess að sá árangur náist og kjarasamningar haldi.

  3. 3. Ályktun skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands - Viðbyggingin við verknámshús

    Mál 2609271 Allur ferill málsins

    Framlögð ályktun Skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands vegna stöðu mála við viðbyggingun við verknámshús skólans. Skólameistari VA og formaður Skólanefndar komu á fundinn kl. 11:00

    Bókun bæjarráðs varðandi málið:

    Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir ályktun skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands og lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu ríkisvaldsins vegna fyrirhugaðrar stækkunar verknámshúss skólans. Fjarðabyggð hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á að stækkunin komi til framkvæmda hið fyrsta. Þrátt fyrir undirritun viljayfirlýsingar árið 2022 hafa framkvæmdir ekki hafist og enn skortir skýra, tímasetta áætlun um fjármögnun og framgang verkefnisins.

    Bæjarráð kallar eftir sanngjarnri hlutdeild í opinberri fjárfestingu og krefst þess að fyrirheit um uppbyggingu innviða endurspeglist í raunverulegum fjárfestingum. Öflugt iðn- og verknám er grundvöllur fjölbreyttra námstækifæra á Austurlandi og forsenda þess að atvinnulíf á svæðinu hafi aðgang að menntuðu fagfólki til áframhaldandi verðmætasköpunar.

    Bæjarráð telur óásættanlegt að brýnni uppbyggingu skólans sé áfram slegið á frest og tekur undir athugasemdir skólanefndar um skort á samráði og upplýsingagjöf af hálfu viðkomandi ráðuneyta. Langvarandi óvissa hamlar þróun náms og starfsemi skólans og samræmist ekki yfirlýstum markmiðum um eflingu iðn- og verknáms.

  4. 4. Til umsagnar 66. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

    Mál 2609280 Allur ferill málsins

    Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 66. mál "Leit að olíu og gasi".

    Bókun Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Miðflokks:

    "Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur heilshugar undir þingsályktunartillögu um leit að olíu og gasi.

    Mikilvægt er að stjórnvöld beiti sér fyrir því að hafnar verði að nýju markvissar rannsóknir á olíu- og/eða gaslindum á landgrunni Íslands og tryggi með viðeigandi löggjöf að þjóðin öll njóti góðs af því ef slíkar auðlindir finnast í íslenskri lögsögu.

    Hagsmunir Austurlands eru miklir í þessu sambandi. Af hálfu hagaðila hefur verið bent á

    Fjarðabyggðarhafnir sem þjónustuhöfn vegna olíuleitar og mögulegrar vinnslu. Slík starfsemi gæti skapað mikilvæg tækifæri til atvinnuuppbyggingar og aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum."

    Fulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðslu bókunarinnar:

    "Fulltrúi Samfylkingarinnar, og annars félagshyggjufólks telur mikilvægt að umræða um mögulegar olíu- og gaslindir á íslenska landgrunninu byggist á vandaðri rýni á fyrirliggjandi gögnum og mati á forsendum frekari rannsókna undir forystu stjórnvalda. Einnig er mikilvægt að tryggt sé með viðeigandi löggjöf að þjóðin öll njóti góðs af því ef slíkar auðlindir finnast í íslenskri lögsögu.

    Hagsmunir Austurlands eru miklir í þessu sambandi. Af hálfu hagaðila hefur verið bent á Fjarðabyggðarhafnir sem mögulega þjónustuhöfn vegna olíuleitar og mögulegrar vinnslu. Slík starfsemi gæti skapað mikilvæg tækifæri til atvinnuuppbyggingar og aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum. Jafnframt þarf að meta umhverfisáhættu, áhrif á sjávarútveg og samræmi við loftslagsmarkmið áður en tekin er afstaða til nýrrar olíuleitar eða mögulegrar vinnslu."

    Bæjarráð felur bæjarritara að semja og senda umsögn um tillöguna á grundvelli fyrri bókana.

    Umsagnarfrestur vegna málsins er til 6. október.

  5. 5. Svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði

    Mál 2608118 Allur ferill málsins

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur óskað eftir tilnefningi í svæðissráð um strandsvæðaskipulag Austfjarða.

    Fjarðabyggð tilnefnir sem aðalmenn Hrafn Bjarnason og Helgu Rakel Arnardóttur, og Stefán Þór Eysteinsson og Þórdísi Mjöll Benediktsdóttur til vara.

  6. 6. Atvinnumál

    Mál 2609283 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál innra minnisblað bæjarstjóra vegna erindis um atvinnumál.

  7. 7. Fyrirspurn um útboð sept 2026

    Mál 2609227 Allur ferill málsins

    Framlagt erindin ÍS - Travel vegna aksturs á vegum Fjarðabyggðar. Sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs falið að vinna minnisblað vegna erindisins og leggja fyrir bæjarráð að nýju í næstu viku.

  8. 8. Forkaupsréttur að Bjarna Ólafssyni AK 70

    Mál 2609278 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Síldarvinnslunar þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til nýtingu forkaupsréttar á skipinu Bjarni Ólafsson AK - 70.

    Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að skipiunu Bjarna Ólafssyni AK - 70

  9. 9. Erindi frá Nestak - september 2026

    Mál 2609285 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Nestak varðandi hjúkrunarheimili í Neskaupstað.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar áhuga Nestaks um uppbyggingu hjúkrunarrýma í Neskaupstað og styður þau heilshugar. Uppbygging hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð er mikilvægt skref til að mæta þörfum íbúa og efla þjónustu við eldra fólk í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við forsvarsmenn Nestaks um áhugan og næstu skref við að kanna forsendur uppbyggingarinnar.

  10. 10. Málaskrá og ábendingakerfi

    Mál 2510183 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála í ábendingakerfi Fjarðabyggðar, ferli ábendinga og svörun. Frestað til næsta fundar.

  11. 11. Kjördæmavika þingmanna - október 2026

    Mál 2609281 Allur ferill málsins

    Þingmenn Norðausturkjördæmis koma til fundar við bæjarráð fimmtudaginn 1. október 2026 kl. 12.

    Farið yfir drög að samantekt bæjarstjóra sem lögð verður fram á fundinum.

  12. 12. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2026

    Mál 2602238 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Austurbrúar og stjórnar SSA frá 15. september 2026

  13. 13. Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026

    Mál 2609270 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð á aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem fram fer miðvikudaginn 7. október 2026. Ragnar Sigurðsson mætir á fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  14. 14. Ársfundur SSKS 2026

    Mál 2609222 Allur ferill málsins

    Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum fer fram miðvikudaginn 7. október. Jóna Árný Þórðardóttir, mætir á fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  15. 15. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 69

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefnar nr. 69 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    1. 15.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20272606170
    2. 15.2 Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - Stríðsárasafn, annar áfangi 730 Reyðarfjörður2609190
    3. 15.3 Byggingarleyfi Mógerði 3, 730 Reyðarfjörður2609105
    4. 15.4 Byggingarleyfi Hafnargata 1, slönguhús, 750 Fáskrúðsfjörður2609162
    5. 15.5 Umsókn um stækkun á lóð Búðarmelur 27, 730 Reyðarfjörður2609174
    6. 15.6 Umsókn um stækkun lóðar Efstagerði 1, 730 Reyðarfjörður2609171
    7. 15.7 Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfjörður2608008
    8. 15.8 Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 20262602149
    9. 15.9 Hætta móttöku lífúrgangs2609177