Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 69

22. september 2026, kl. 15:00 til 17:10, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Erla Margrét Gunnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, varamaður
  • Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
  • Guðröður Hákonarson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 962 liður 15

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefnar nr. 69 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 422 liður 4

    Fundargerð 69. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar frá 22. september tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð 69. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar er samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027

    Mál 2606170 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að launaáætlun 2027 og fjallað um áherslur áframhaldandi vinnu í fjárhagsáætlungerð. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur sviðsstjóra að skila launaáætlun til fjármálastjóra.

  2. 2. Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - Stríðsárasafn, annar áfangi 730 Reyðarfjörður

    Mál 2609190 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir 2. áfanga uppbyggingu Stríðsárasafnssins við Heiðarveg 37, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Byggingarleyfi Mógerði 3, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2609105 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Mógerði 3, 730 Reyðarfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Byggingarleyfi Hafnargata 1, slönguhús, 750 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2609162 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir slönguhúsi á Hafnargötu 1, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Umsókn um stækkun á lóð Búðarmelur 27, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2609174 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun lóðar við Búðarmel 27 á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkkun á lóð og kallar eftir uppdrætti af óverulegri breytingu á deiliskipulagi, Melur 1, og leggja fyrir nefnd að nýju.

  6. 6. Umsókn um stækkun lóðar Efstagerði 1, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2609171 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir stækkun á lóðum við Efstagerði 1-7, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkkun á lóðunum, með fyrirvara um staðsetningu vatnslagna, nefndin felur skipulagsfulltrúa að afla þeirra upplýsinga og vera í sambandi við umsækjanda. Skipulags- og framkvæmdanefnd kallar í framhaldi eftir uppdrætti af óverulegri breytingu á deiliskipulagi og leggja fyrir nefnd að nýju.

  7. 7. Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfjörður

    Mál 2608008 Allur ferill málsins

    Minnisblað er inniheldur bréf frá umsækjanda varðandi umsókn um lóð við Egilsbraut 16, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar erindinu til næsta fundar í ljósi fyrri viðræðna við félagasamtökin Bærinn okkar, sbr. gr. 2.3 í lóðaútlutunarreglum Fjarðabyggðar.

    Nefndin felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að ræða við forsvarsmenn Bærinn okkar og kalla eftir framkvæmdaáætlun til að leggja fram á næsta fundi nefndar sem er á dagskrá eftir tvær vikur, þriðjudaginn 6. október.

  8. 8. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

    Mál 2602149 Allur ferill málsins

    Fundargerð 192. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  9. 9. Hætta móttöku lífúrgangs

    Mál 2609177 Allur ferill málsins

    Minnisblað um lífúrgangsmál á Austurlandi lagt fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.