NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 68
8. september 2026, kl. 15:00 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
- Hafþór Eiríksson, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Erla Margrét Gunnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 959 liður 14
Fundargerð 65. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 421 liður 3
Til máls tóku Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. september utan dagskrárliða 9 og 10 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Mál 2606170 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra að vinna áfram að áætlun ársins árið 2027.
-
2. Málaflokkayfirlit
Mál 2609084 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu málaflokksins. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
3. Byggingarleyfi Hraun 1 - Stálgrindarhús
Mál 2608178 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir stálgrindarhús við Hraun 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Byggingarleyfi Hraun 11a
Mál 2608036 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi Hraun 11a, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Mál 2510022 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu verkefnisins. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.
-
6. Umferðarsamþykkt
Mál 2504048 Allur ferill málsins
Lögð fram áætlun frá Eflu í gerð Umferðisöryggisáætlunar fyrir Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindinu til áfram haldandi umræðu.
-
7. Stekkjargata - Torg og garðsvæði við Egilsbúð
Mál 2607162 Allur ferill málsins
Lögð fram endanleg tillaga að hönnun við torg innan við Egilsbúð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
8. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2609078 Allur ferill málsins
Sótt eru um stöðuleyfi fyrir viðarperlugeymslu úr Stáli við Heiðarveg 14A, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi. Nefndin leggur áherslu á snyrtilegan frágang.
-
9. Ósk um að erindi um göngubrú yfir Grjótá
Mál 2609082 Allur ferill málsins
Ósk um að erindi um göngubrú yfir Grjótá, Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
10. Göngubrú yfir Lambeyrará
Mál 2609060 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn Skógræktarfélags Eskifjarðar um göngubrú. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að skoða útfærslu á málinu í samráði við Skógræktarfélag Eskifjarðar.
-
11. Umsókn um stækkun á lóð við Fagrahlíð 11 ESK
Mál 2608054 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð við Fagrahlíð 11 ESK. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkunina og felur skipulagsfulltrúa að útbúa lóðarblað og leggja fyrir fund að nýju.
-
12. Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar
Mál 2409075 Allur ferill málsins
Lögð fram fundaráætlun fyrir árið 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fundaráætlunina.