Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 959

14. september 2026, kl. 08:30 til 10:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 421 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. september að undanskildum dagskrárlið 4. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Haustþing SSA 2026

    Mál 2609049 Allur ferill málsins

    Fjallað um undirbúning haustþings SSA 2026.

  2. 2. Samstarfsverkefni með Bríeti - Bakkabakki og Breiðablik

    Mál 2511118 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála gagnvart leigufélaginu Bríeti varðandi húsnæði Bakkabakka og Breiðablik.

  3. 3. Erindi frá Nestak

    Mál 2609142 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Nestak varðandi Bakkabakka í Neskaupstað.

    Bæjarráð þakkar erindið og ósk um samtal vegna Bakkabakka 15 í Neskaupstað. Fyrir liggur viljayfirlýsing við Bríeti um kaup á húsnæðinu, í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar þar sem bæjarstjóra var falið að ganga frá kaupsamningi. Unnið er að því að leiða þau kaup til lykta. Að svo stöddu er því ekki tilefni til frekari viðræðna um sölu eða eignaskipti vegna fasteignarinnar. Bæjarstjóra falið að ræða við Nestak.

  4. 4. Orkuöflun Njörvadalsár og Geithúsaár

    Mál 2607085 Allur ferill málsins

    Alma Sigurbjörnsdóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Farið yfir framgang áforma Grunnorku ehf. um virkjun vatnsorku Njörvadalsár og Geithúsaár.

    Bæjarráð óskar eftir að lögmaður sveitarfélagsins fari yfir samningsdrög og þeir teknir til umfjöllunar á fundi bæjarráðs að nýju.

  5. 5. Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga

    Mál 2609085 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu verkefna sem Heilbrigðiseftirlit hefur sinnt og munu færast til nýrra stofnana og sveitarfélaga um næstu áramóta.

  6. 6. Landsþings sambandsins 23.-25.09.26

    Mál 2602019 Allur ferill málsins

    Framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga og tillögu kjörnefndar sem lagðar verða fyrir á landsþingi sambandsins.

    Lagðar fram til kynningar.

  7. 7. Ósk um gjaldfrjálsa notkun á Skrúð

    Mál 2609101 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi vegna beiðnar um styrk vegna húsaleigu á félagsheimilinu Skrúð vegna hjónaballs 2027.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn afnotum af húsnæðinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21-690.

  8. 8. Notendaráð sveitarfélaga

    Mál 2609131 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um skipan notendaráða.

    Vísað til fjölskyldunefndar.

  9. 9. Tilboð í uppsetningu á stálneta yfir stíflu

    Mál 2609158 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Ofanflóðasjóði vegna tilboð í uppsetningu stoðneta yfir stíflu við ofanflóðamannvirki á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir tillögu Ofanflóðsjóðs um töku tilboðs lægstbjóðanda, Gasser Felstechnik AG / Múrberg ehf.

  10. 10. Aðalfundur Orkusveitarfélaga

    Mál 2608047 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Orkusveitarfélaga frá 21. ágúst lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026

    Mál 2602129 Allur ferill málsins

    Fundargerðir 93.-96. funda stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

  12. 12. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

    Mál 2601212 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  13. 13. Hafnarstjórn - 345

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 345. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 13.1 Staða og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi2609038
    2. 13.2 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn2501155
    3. 13.3 Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining2505124
    4. 13.4 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20272608131
    5. 13.5 Ósk um aðgang að Norðfjarðarvita2609029
  14. 14. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 68

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 65. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20272606170
    2. 14.2 Málaflokkayfirlit2609084
    3. 14.3 Byggingarleyfi Hraun 1 - Stálgrindarhús2608178
    4. 14.4 Byggingarleyfi Hraun 11a2608036
    5. 14.5 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík2510022
    6. 14.6 Umferðarsamþykkt2504048
    7. 14.7 Stekkjargata - Torg og garðsvæði við Egilsbúð2607162
    8. 14.8 Umsókn um stöðuleyfi2609078
    9. 14.9 Ósk um að erindi um göngubrú yfir Grjótá2609082
    10. 14.10 Göngubrú yfir Lambeyrará2609060
    11. 14.11 Umsókn um stækkun á lóð við Fagrahlíð 11 ESK2608054
    12. 14.12 Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar2409075