Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 345

7. september 2026, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Jóna Árný Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, formaður
  • Sigurjón Andrés Jónasson, varaformaður
  • Friðrik Júlíus Jósefsson, aðalmaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Baldur Marteinn Einarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 959 liður 13

    Fundargerð 345. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 421 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Staða og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi

    Mál 2609038 Allur ferill málsins

    Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, kynnir stöðu og horfur skemmtiferðaskipageirans á Íslandi. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.

  2. 2. Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2501155 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðuna vegna landmótunar. Hafnarstjóra og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.

  3. 3. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining

    Mál 2505124 Allur ferill málsins

    Hafnarstjóri for yfir næstu skref í framhaldi af skipulagsgreiningu Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027

    Mál 2608131 Allur ferill málsins

    Hafnarstjóri fór yfir fjárhagsupplýsingar í tengslum við fjárhagsáætlun 2027. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur stjórnanda hafna að vinna áfram að áætlun ársins 2027.

  5. 5. Ósk um aðgang að Norðfjarðarvita

    Mál 2609029 Allur ferill málsins

    Menningarstofa, fyrir hönd Mollie Tilley óskar eftir leyfi til að taka upp myndband í Norðfjarðarvita í tengslum við listamannadvöl hennar í Þórsmörk í nóvember. Hafnarstjórn samþykkir þetta fyrir sitt leiti.