Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 346

28. september 2026, kl. 16:00 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, formaður
  • Sigurjón Andrés Jónasson, varaformaður
  • Friðrik Júlíus Jósefsson, aðalmaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Baldur Marteinn Einarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 422 liður 6

    Fundargerð 346. fundar hafnarstjórnar frá 28. september tekinn til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð 346. fundar hafnarstjórnar er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2027

    Mál 2609191 Allur ferill málsins

    Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórnanda hafna falið að uppfæra gjaldskrá miðað við gefnar forsendur og leggja aftur fyrir hafnarstjórn.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027

    Mál 2608131 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2027. Farið yfir forsendur launaáætlunar. Stjórnanda hafna falin áframhaldandi vinna við áætlunina og leggja aftur fyrir hafnarstjórn.

  3. 3. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining

    Mál 2505124 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar.

  4. 4. Atvinnumál

    Mál 2609283 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál innra minnisblað bæjarstjóra

  5. 5. Ástandsskoðun Safnahússins í Neskaupstað

    Mál 2609282 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um viðhald Safnahússins í Neskaupstað.

  6. 6. Hafnasambandsþing 2026

    Mál 2601124 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til Hafnasambandsþings Hafnasambands Íslands þann 22.-23. október 2026.

  7. 7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

    Mál 2601118 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir 484. og 485. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.