Hafnarstjórn, fundur 347
12. október 2026, kl. 16:00 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, formaður
- Sigurjón Andrés Jónasson, varaformaður
- Friðrik Júlíus Jósefsson, aðalmaður
- Adam Ingi Guðlaugsson, varaformaður
- Baldur Marteinn Einarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 965 liður 38
Fundargerð 347. fundar hafnarstjórnar lögð fram til staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 423 liður 7
Fundargerð 347. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók: Þórdís Mjöll Benediktsdóttir.
Fundargerð 347. fundar hafnarstjórnar er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Mál 2505124 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar.
-
2. Erindi til hafnarstjórnar, löndunarkrani og innsiglingarljós Breiðdalsvík
Mál 2610086 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Elís Pétri Elíssyni vegna löndunarkrana og innsiglingarljóss á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn þakkar erindið. Nýr löndunarkrani fyrir Breiðdalsvíkurhöfn er á leið til landsins og væntanlegur í næstu viku. Innsiglingarljós er einnig í pöntun og verður sett upp um leið og það kemur. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu á grundvelli upplýsinga.
-
3. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2027
Mál 2609191 Allur ferill málsins
Uppfærð gjaldskrá lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
Mál 2608131 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2027.
-
5. Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Mál 2501155 Allur ferill málsins
Fyrir liggur að fara þarf í að moka umframefni ofan af klöppum vegna landmótunar á Digranesvegi 1 og 3 á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í verkið.