Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 348

2. nóvember 2026, kl. 16:00 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, formaður
  • Sigurjón Andrés Jónasson, varaformaður
  • Friðrik Júlíus Jósefsson, aðalmaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Baldur Marteinn Einarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 968 liður 9

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Stefnumótun móttaka skemmtiferðaskipa

    Mál 2610252 Allur ferill málsins

    Farið yfir samantekt af Seatrade Cruise Med ráðstefnunni og umræður á súpufundi með ferðaþjónustuaðilum í Fjarðabyggð sem haldinn var þann 29.október síðastliðinn. Efni fundarins var móttaka skemmtiferðaskipa í Fjarðabyggð. Góð þátttaka var á fundinum og mikill áhugi og umræður. Stjórnanda og verkefnastjóra hafna falið að móta tillögur á grundvelli umræðunnar og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  2. 2. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining

    Mál 2505124 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar.

  3. 3. Rafmagn Frystihússbryggja Leirubakki 9

    Mál 2610253 Allur ferill málsins

    Farið yfir ferli er varðar verðkönnun. Eftir yfirferð á ferli verðkönnunar er það mat hafnarstjórnar að ekki sé tilefni til breytinga er snúa að opnun tilboða, enda hafi verið gætt að jafnræði bjóðenda og málsmeðferð verið í samræmi við gildandi reglur og fagleg sjónarmið.

  4. 4. Verðkönnun - Leirubakki 9 Eskifirði - Rafkerfi

    Mál 2609302 Allur ferill málsins

    Niðurstöður verðkönnunar í rafkerfi Leirubakka 9 á Eskifirði liggja fyrir. Tvö tilboð bárust og hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026

    Mál 2505143 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna í framkvæmdum ársins 2026.

  6. 6. Ástandsskoðun trébryggja Norðfjarðarhöfn

    Mál 2610254 Allur ferill málsins

    Farið yfir niðurstöður ástandsskoðunar á trébryggjunni í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn felur stjórnanda hafna að vinna að undirbúningi viðgerða og leggja áætlun þar um fyrir fund.

  7. 7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

    Mál 2601118 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 486. og 487. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.