Hafnarstjórn, fundur 344
24. ágúst 2026, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, formaður
- Sigurjón Andrés Jónasson, varaformaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Hafþór Eiríksson, varamaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 957 liður 13
Fundargerð hafnarstjórn frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 420 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
Mál 2608131 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda á árinu og hvað er framundan til loka árs. Vísað áfram til frekari vinnslu við starfs- og fjárhagsáætlun 2027.
-
2. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Mál 2505124 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðuna á Mjóeyrarhafnarsvæðinu
-
3. Deiliskipulag Hafnarsvæðis á Stöðvarfirði
Mál 2608143 Allur ferill málsins
Farið yfir deiliskipulag og skilmála fyrir hafnarsvæðið á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn felur skipulags- og framkvæmdasviði að skoða útfærslur.
-
4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica
Mál 2608032 Allur ferill málsins
Erindi frá Gáru þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu fyrir Laust Vestergaard, skipstjóra á Tukuma Arctica. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.