Bæjarráð, fundur 958
7. september 2026, kl. 08:30 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 421 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Mál 2605021 Allur ferill málsins
Tillaga lögð fram um breytingu á kjörstjórn á Norðfirði.
Eyrún Eggertsdóttir er að flytjast búferlum af svæðinu en hún hefur verið varamaður í kjörstjórn á Norðfirði. Í stað hennar er Sigrún Víglundsdóttir skipuð í kjörstjórnina.
-
3. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til umfjöllunar bæjarráðs framvindu framkvæmda við fyrsta áfanga uppbyggingar safnsins og fjármögnun áfangans m.a. til innréttinga og sýninga.
Bæjarráð vísar fjármögnun áfangans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
-
4. Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
Mál 2501185 Allur ferill málsins
Farið yfir hugmyndir að uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði með fulltrúa R101 ehf.
-
5. Haustþing SSA 2026
Mál 2609049 Allur ferill málsins
Framlögð dagskrá haustþings Sambands sveitarfélaga á Austurlandi ásamt upplýsingum um fyrirkomulag þingsins.
-
6. Landsþings sambandsins 23.-25.09.26
Mál 2602019 Allur ferill málsins
Landsþing sveitarfélaga verður haldið dagana 23. til 25. september.
Drög að stefnumörkun Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
7. Fjármálaráðstefna 2026
Mál 2609074 Allur ferill málsins
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin 8. til 9. október nk. Farið yfir ferðaskipulag og þátttöku en bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra sækja ráðstefnuna.
-
8. Loftslagsskyldur sveitarfélaga og loftslagsstefna Íslands
Mál 2609013 Allur ferill málsins
Glærur frá samtalsfundi vegna loftslagsstefnu Íslands lagðar fram til kynningar.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til skoðunar.
-
9. Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga
Mál 2609085 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað til kynningar um breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga sem taka gildi frá 1. janúar 2027.
Vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd.
-
10. Samstarfssamningur um hugbúnaðarlausn
Mál 2608069 Allur ferill málsins
Farið yfir hugmyndir að hugbúnaðarlausn fyrir úrgangsmál.
-
11. Stjórn menningarstofu - 41
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 1. september lögð fram til afgreiðslu.
- 11.1 Verkefni menningarstofu 20262602053
- 11.2 Samhæfing safna Fjarðabyggðar2505090
- 11.3 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
- 11.4 Umsókn í Húsafriðunarsjóð 2025 - Viðhald á Randúlffssjóhúsi2511235
- 11.5 Úttekt á hljóðkerfum Eskifjarðarkirkju og Egilsbúðar2608270
- 11.6 Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands2608283
- 11.7 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
- 11.8 Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2607073
-
12. Fjölskyldunefnd - 65
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. september lögð fram til afgreiðslu.
- 12.1 Íþróttavika Evrópu 23.-30. september 20262606072
- 12.2 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
-
13. Stjórnkerfisnefnd 2026
Mál 2608281 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu verkefna sem unnið var að í tengslum við úttekt Deloitte sem og síðustu breytingar.