Fjölskyldunefnd, fundur 65
2. september 2026, kl. 16:15 til 16:45, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Helga Rakel Arnardóttir, varaformaður
- Sigrún Eva Grétarsdóttir, aðalmaður
- Valborg Ösp Árnadóttir Warén, aðalmaður
- Anna Guðný Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, embættismaður
- Líneik Anna Sævarsdóttir, embættismaður
- Bergey Stefánsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 958 liður 12
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. september lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 421 liður 5
Til máls tóku Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Íþróttavika Evrópu 23.-30. september 2026
Mál 2606072 Allur ferill málsins
Stjórnandi íþrótta- og frístundamála fór yfir dagskrá íþróttavikunnar sem er fjölbreytt og á vegum íþróttafélaganna sem hafa flest boðað þátttöku. Jafnframt var farið yfir verkefnið ,,Allir með" sem íþróttafélög hafa verið hvött til þátttöku í. Ungmennafélagið Valur á Reyðarfirði hefur þegar riðið á vaðið.
-
2. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Mál 2602108 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir rammaúthlutun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027. Nefndin samþykkir rammaúthlutun og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.