Stjórn menningarstofu, fundur 41
1. september 2026, kl. 14:30 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Tanja Tómasdóttir, varaformaður
- Júlíus Óli Jacobsen, aðalmaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 958 liður 11
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 1. september lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 421 liður 6
Til máls tók Birgir Jónsson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 1. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni menningarstofu 2026
Mál 2602053 Allur ferill málsins
Verkefnastjóri safna í menningarstofu og umsjónarmaður safna fóru yfir framgang áætlunar um uppbyggingu og viðurkenningu safna ásamt reynslu af safnastarfi á liðnu sumri.
-
2. Samhæfing safna Fjarðabyggðar
Mál 2505090 Allur ferill málsins
Þóra Björk Ólafsdóttir kynnti starfsemi Safnaráðs og úthlutanir Safnasjóðs. Farið verður yfir stöðu og framtíð safna Fjarðabyggðar með hliðsjón af fimm ára áætlun um uppbyggingu þeirra.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Mál 2603195 Allur ferill málsins
Fjallað um áherslu í starfsemi fyrir árið 2027 og stöðu rekstrar menningarmálaflokksins.
Stjórn felur bæjarritara að hefja vinnu við útfærslu fjárhagsáætlunar á forsendum rammaúthlutunar og umræðu á fundinum og leggja niðurstöður fyrir fund stjórnar.
-
4. Umsókn í Húsafriðunarsjóð 2025 - Viðhald á Randúlffssjóhúsi
Mál 2511235 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar úthlutun Húsafriðunarsjóðs til endurbóta þaks Randulffssjóhúss.
Skipulags- og framkvæmdasvið er með framkvæmd verksins.
-
5. Úttekt á hljóðkerfum Eskifjarðarkirkju og Egilsbúðar
Mál 2608270 Allur ferill málsins
Forstöðumaður fór yfir úttekt Exton á hljóðkerfum Eskifjarðarkirkju og Egilsbúðar.
Stjórn felur forstöðumanni menningarstofu að vinna áfram að málinu.
-
6. Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
Mál 2608283 Allur ferill málsins
Fjallað um samning Fjarðabyggðar og Sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju um afnot og þjónustu í Tónlistarmiðstöð.
Stjórn felur formanni ásamt bæjarritara og forstöðumanni að funda með sóknarnefnd um efni samnings og leggja niðurstöður fyrir fund stjórnar.
-
7. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Frá fyrri fundi stjórnar til umfjöllunar hugmyndavinna vegna sýningarhönnunar og sýningarstjórnunar ásamt fjárhagsáætlun sýningargerðarinnar.
Stjórn vísar fjármögnun sýningarinnar til bæjarráðs og mögulegrar viðaukagerðar vegna framkvæmdarinnar.
-
8. Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2607073 Allur ferill málsins
Farið yfir framgang annars áfanga og tímasetningar vegna afhendingar á húsnæði en kostnaðargreining verkefnis verður lögð fram á næsta fundi.