Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 40

18. ágúst 2026, kl. 15:00 til 17:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Tanja Tómasdóttir, varaformaður
  • Júlíus Óli Jacobsen, aðalmaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 956 liður 11

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 18. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 420 liður 6

    Til máls tók Birgir Jónsson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 18. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2510108 Allur ferill málsins

    Sara Hjördís Blöndal, sýningarstjóri og sýningarhönnuður nýrra sýninga í Stríðsárasafni kynnir hugmyndavinnu og fjárhagsáætlun sýningargerðarinnar.

    Stjórn þakkar kynningu og tekur málið til umfjöllunar á næsta fundi stjórnar.

  2. 2. Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins

    Mál 2607073 Allur ferill málsins

    Umræða með sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og sýningarhönnuði um stöðu uppbyggingar fyrsta áfanga og tímasetningar vegna afhendingar á húsnæði ásamt verkefnum við annan áfanga uppbyggingarinnar miðað við áætlanir.

    Sviðsstjóra falið að vinna að uppbyggingu annars áfanga eins og áætlanir og umsóknir um styrki gera ráð fyrir innan ársins 2026. Tekið fyrir á næasta fundi stjórnar.

  3. 3. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Kynning Tinnu Kristbjargar á framvindu endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar, en hún vinnur að ritstjórn stefnunnar og samráðsfundum með samfélaginu.

  4. 4. Menningarstefna Austurlands

    Mál 2608028 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að menningarstefnu Austurlands.

    Stjórn gerir ekki efnislegar athugasemdir við stefnuna sem slíka og fagnar gerð hennar.

  5. 5. Verkefni menningarstofu 2025

    Mál 2501084 Allur ferill málsins

    Karitas Harpa fór yfir framvinduskýrslu sína á verkefnum í barnamenningu og tónlistaruppbyggingu á árinu 2026 og því sem er framundan í starfinu.

  6. 6. Verkefni menningarstofu 2025

    Mál 2501084 Allur ferill málsins

    Marc Alexanders fór yfir framvinduskýrslu sína á verkefnum í listamannahúsum og skapandi sumarstörfum á árinu 2026 og því sem er framundan í starfinu.

  7. 7. Málverkagjöf Christian Blache

    Mál 2608067 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Vilhjálmi Bjarnasyni þar sem honum er falið að bjóða Menningarstofu Fjarðabyggðar að gjöf tvö málverk eftir danska málarann Christian Vigilius Blache (1838?1920), sem kennd er við Skagen. Myndir eru keyptar á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn og málaðar um 1880. Myndin frá Eskifirði var seld undir heitinu, „Aften í Skærgaarde í Mandal“. Mynd frá Fáskrúðsfirði var seld undir heitinu„Skonnert under Kysten“.

    Stjórn samþykkir að taka við verkunum og þakkar kærlega fyrir góðar gjafir.