Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 956

24. ágúst 2026, kl. 08:30 til 12:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 420 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Birgir Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 24. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2026

    Mál 2602253 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur málaflokka fyrir janúar-júní auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar til júlí 2026.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 2

    Mál 2608142 Allur ferill málsins

    Viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 lagður fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027

    Mál 2603185 Allur ferill málsins

    Framhaldið vinnu við mótun ramma fjárhagsáætlunar 2027.

    Bæjarráð vísar umræðu áfram til næsta fundar bæjarráðs.

  4. 4. Greinargerð um framkvæmdir ársins

    Mál 2604093 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð um stöðu framkvæmda það sem af er ári og framkvæmdir framundan. Farið yfir stöðu viðhaldsverkefna og framkvæmda hjá sveitarfélaginu.

  5. 5. Veikindalaun 2026

    Mál 2608041 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að greinargerð um veikindalaun og hlutfallstölur stofnana ásamt niðurstöðum Bradfordkvarða til kynningar.

  6. 6. Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði

    Mál 2505129 Allur ferill málsins

    Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði var skipaður 26. maí 2025 og skipunartími hópsins rann út í enda síðast kjörtímabils. Lagt fram erindisbréf hópsins og umræða um skipun hans.

    Bæjarráð samþykkir að framlengja erindisbréf starfshópsins og kallað verði eftir fulltrúum Íbúasamtaka Eskifjarðar og Ungmennafélagsins Austra að nýju auk þess sem fulltrúi Miðflokksins bætist við og fulltrúi komi frá Samfylkingu í stað Fjarðalista.

  7. 7. Samstarfsamningur Fjarðabyggðar og KFA

    Mál 2608079 Allur ferill málsins

    Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) hefur óskað eftir áframhaldandi samstarfi við Fjarðabyggð um kynningarmál þegar núverandi samningur rennur út í lok árs 2026.

    Bæjarráð samþykkir að unnið verði að uppfærslu á samningi sveitarfélagsins og KFA með vísan til áherslna sveitarfélagsins. Samningur lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar.

  8. 8. Umsókn um stækkun lóðar Hraun 4

    Mál 2512112 Allur ferill málsins

    Visað frá skipulags og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðar Hraun 4, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkti fyrir sitt leyti stækkun á lóð með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi.

    Bæjarráð vísar umsókn um stækkun lóðar til bæjarstjóra til úrvinnslu.

  9. 9. Auka ársfundur Austurbrúar 2026

    Mál 2608077 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð auka ársfundar Austurbrúar sem haldinn verður 1. september nk.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  10. 10. Nýja svæði Dreka

    Mál 2603166 Allur ferill málsins

    Fulltrúar Skotíþróttafélagsins Dreka mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir starfsemi félagsins og áform þess um uppbyggingu svæðis.

  11. 11. Stjórn menningarstofu - 40

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 18. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    1. 11.1 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
    2. 11.2 Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2607073
    3. 11.3 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
    4. 11.4 Menningarstefna Austurlands2608028
    5. 11.5 Verkefni menningarstofu 20252501084
    6. 11.6 Verkefni menningarstofu 20252501084
    7. 11.7 Málverkagjöf Christian Blache2608067