Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 305

29. ágúst 2012, kl. 16:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 118 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs á sumarleyfistíma bæjarstjórnar lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu.Forseti bæjarstjórnar vék af fundi 17:55 og við tók 2. varaforseti bæjarstjórnar Elvar Jónsson.Til máls tóku:  Valdimar O Hermannsson, Forseti bæjarstjórnar tók við embætti 18:00 af 2. varaforseta bæjarstjórnar.Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013

    Mál 1208011 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sátu Jóna Árný Þórðardóttir og Bjarni Ólafur Birkisson sérfræðingur á fjármálasviði.Farið yfir forsendur fjáhagsáætlunar, tekju- og gjaldahlið áætlunar.Fram lagðir fjárhagsrammar fyrir árið 2013.Bæjarráð samþykkir að vísa tillögum að fjárhagsrömmum ársins 2013 til nefnda til vinnslu.

  2. 2. Endurskoðun á úthlutunarreglum íþrótta- og frístundastyrkja

    Mál 1208066 Allur ferill málsins

    Er á dagskrá fræðslu- og frístundanefndar í dag. Bæjarráð felur fræðslu- og frístundanefnd að endurskoða úthlutunarreglur íþrótta- og frístundastyrkja.

  3. 3. Úthlutun úr styrkvegasjóði fyrir árið 2012

    Mál 1207093 Allur ferill málsins

    Til kynningar tillaga frá ESU um ráðstöfun styrkvegafjár.

    Framlagt bréf frá Vegagerð þar sem gerð er grein fyrir 3.000.000 kr framlagi til stofnvega í sveitarfélaginu. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd sótti alls um styrk að fjárhæð 7 mkr. og leggur til eftirfarandi forgangsröðun við bæjarráð:Byggingu á brú yfir Seldalsá 1,0 mkr.

    Endurbætur á veg upp á Eskifjarðarheiði 0,5 mkr.

    Slóða í Skógræktarsvæði á Eskifirði 1,0 mkr.

    Ofaníburður í Fannardalsveg 0,5 mkr.Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar.

  4. 4. Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar

    Mál 1106083 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tvær nýjar leiðbeinandi reglur vegna starfsmannamála.a. Móttaka nýrra starfsmanna

    b. Starfslok og stórviðburðir í lífi starfsmannaBæjarráð staðfestir reglurnar.

  5. 5. Fjarvistastefna

    Mál 1203029 Allur ferill málsins

    Lögð fram stefna í starfsmannamálum sem fjallar um fjarvistir starfsmanna.Bæjarráð staðfestir fjarvistarstefnuna.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012

    Mál 1201252 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 24.ágúst lögð fram til kynningar.

  7. 7. 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði

    Mál 1101234 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Skipulagstofnunar, dagsett 24. júlí 2012, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar um hvort og á hvaða forsendum ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði skuli háðar mati á umhverfisáhrifum.Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á 44. fundi sínum að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.Bæjarráð staðfestir niðurstöðu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.