Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 306

3. september 2012, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 118 liður 1

    Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Stefán Már Guðmundsson Óskar Þór Hallgrímsson.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013

    Mál 1208011 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.Forsendur fjárfestingaráætlunar fyrir árið 2013 og langtímaáætlunar ræddar.

  2. 2. Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja

    Mál 1208066 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri og forstöðumaður íþrótta- og tómstundamála sátu þennan dagskrárlið fundar.Farið yfir umræður  fræðslu- og frístundanefndar og áherslur í úthlutun styrkja til æskulýðs- og íþróttamála.Elvar Jónsson bókar eftirfarandi: Íþrótta og tómstundafulltrúi vinni minnisblað þar sem styrkupphæðir Fjarðabyggðar til íþróttamála er bornar saman við upphæðir í sambærilegum sveitarfélögum. Einnig kallar Elvar eftir því að fulltrúar stórfyrirtækjanna í Fjarðabyggð, sjávarútvegsfyrirtækjanna og Fjarðaráls, verði kallaðir á fund bæjarráðs hið fyrsta þar sem fjármagn til íþróttamála verði til umræðu.

  3. 3. Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2012

    Mál 1105180 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Þróunarfélagsins ásamt fundargerð stjórnar frá 30. ágúst s.l. lögð fram til kynningar.

  4. 4. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf

    Mál 1104081 Allur ferill málsins

    Framlagt samkomulag Fjarðabyggðar og Eignarhaldsfélagsins fasteignar um uppgjör vegna yfirtöku á viðhalds- og endurbótaskyldu fasteigna sem Fjarðabyggð leigir af félaginu.Bæjarráð samþykkir samkomulagið.

  5. 5. Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1204061 Allur ferill málsins

    Gunnar Ragnar Jónsson hefur sagt sig úr félagsmálanefnd sem varaformaður nefndarinnar.Sjálfstæðisflokkurinn tilnefnir Láru Björnsdóttir sem aðalmann en hún var varamaður og tilnefnir varamann á næsta fundi bæjarráðs.

  6. 6. Fræðslu- og frístundanefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  7. 7. Atvinnu- og menningarnefnd - 33

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram til kynningar.