Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 307

10. september 2012, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 119 liður 1

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson og Páll Björgvin Guðmundsson. Fundargerð bæjarráðs nr. 307 frá 10.september samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði

    Mál 1101234 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Skipulagsstofnunar frá 5.september, þar sem fallist er á að framkvæmdir við ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði við Nýjabæjarlæk séu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Lagt fram til kynningar.

  2. 2. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga Austurlandi 2012

    Mál 1209023 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar fundarboð og dagskrá aðalfundar SSA 2012 sem haldinn verður 14. og 15. september á Borgarfirði eystri. Rætt um undirbúning fundar.

  3. 3. Afslættir fasteignagjalda

    Mál 1209039 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð fjármálasviðs, frá 7.september, um áhrif breytinga á tekjumörk í reglum um afslátt af fasteignaskatti eldri borgara og örorkulífeyrisþega.  Bæjarráð sammála um að tekjumörk verði endurskoðuð í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2013. Bæjarstjóra falið að leggja endanlega tillögu fyrir bæjarráð síðar.

  4. 4. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012

    Mál 1209031 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012 sem haldinn verður 26. september nk. í Reykjavík.  Bæjarráð felur bæjarritara að sækja ársfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

  5. 5. Beiðni um bætta félagsþjónstu á Stöðvarfirði

    Mál 1206156 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála vegna umræðu um félagsaðstöðu eldri borgara og ungmenna á Stöðvarfirði.  Tekið fyrir á næsta fundi þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

  6. 6. Bréf frá foreldrum barna á Sólvöllum - Saltkráku

    Mál 1208080 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf, dagsett 23.ágúst, frá foreldrum barna á deildinni Saltkráku á Sólvöllum í Neskaupstað, þar sem óskað er eftir afslætti á leikskólagjaldi vegna flutnings hluta barna inn á Kirkjumel. Einnig lagt fram minnisblað fræðslustjóra frá 9.september.  Erindi foreldra vísað til fræðslu- og frístundanefndar til umsagnar.  Tekið fyrir á fundi bæjarráðs síðar í mánuðinum.

  7. 7. Drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga

    Mál 1209036 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins þar sem óskað er umsagnar um ný náttúruverndarlög fyrir 25.september.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd er falin afgreiðsla málsins og að gefa umsögn fyrir tilgefinn frest. 

  8. 8. Drög af samþykktum og dagskrá aukaaðalfundar Mennigarráðs Austurlands

    Mál 1209019 Allur ferill málsins

    Aukaaðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn á Borgarfirði eystri 14. september 2012. Lögð fram dagskrá fundar ásamt breytingum á samþykktum ráðsins og viðauka við samning sveitarfélaga um menningarmál.  Fulltrúar Fjarðabyggðar á fundinum verða Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

  9. 9. Heyskapur á jörðinni Hólmum

    Mál 1209001 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Snorra Jónssonar frá 1.september, þar sem óskað er eftir heimild til að fá að heyja tún á jörðinni Hólmum í Reyðarfirði. Einnig lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra frá 9.september.  Á grundvelli aðalskipulags Fjarðabyggðar getur bæjarráð ekki fallist á ósk Snorra og felur bæjarstjóra að svara erindinu.

  10. 10. Innkaupareglur Fjarðabyggðar

    Mál 2008-01-25-92 Allur ferill málsins

    Umræða um innkaupareglur. Bæjarráð vísar reglunum til fjármálasviðs og bæjarstjóra til frekari vinnslu.

  11. 11. Þrautabraut í tengslum við Verkmenntaskóla Austurlands

    Mál 1209018 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Þórðar Júlíussonar skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands, frá 24.ágúst, um gerð þrautabrautar í nágrenni skólans. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.  

  12. 12. Vatnsveita Fjarðabyggðar Fáskrúðsfirði

    Mál 2008-03-11-503 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar verksamningur um framkvæmdir við stofnlögn vatnsveitu á Fáskrúðsfirði í samvinnu með RARIK.  Bæjarráð hefur áður samþykkt framkvæmdina og staðfestir nú samninginn.

  13. 13. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012

    Mál 1201123 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 33 frá 3.september 2012 lögð fram til kynningar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 45

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 45 frá 3.september 2012 lögð fram til kynningar.