Bæjarráð, fundur 304
23. ágúst 2012, kl. 16:00 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 118 liður 6
Fundargerðir bæjarráðs á sumarleyfistíma bæjarstjórnar lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu.
Dagskrá
-
1. Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins
Haukur Óskarsson og Valgeir Kjartansson frá Mannviti sátu þennan lið fundarins auk formanns eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og framkvæmdastjóra hafnanna. Rædd voru málefni olíubirgðastöðvar, olíuleit á Drekasvæðinu og tengd mál.
-
2. Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum
Mál 1207083 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri hafna sat þennan lið fundarins og fór, ásamt bæjarstjóra, yfir drög að umsögn vegna starfsleyfis fyrir 200 tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir drög að umsögn en tekið hefur verið tillit til athugasemda hafnarstjórnar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita umsögnina.
-
3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Mál 1208011 Allur ferill málsins
Farið yfir undirbúning, úthlutun ramma og tekjuáætlun fjárhagsáætlunar 2013.
-
4. Aðgengismál fatlaðra við kjörstaði í Fjarðabyggð
Mál 1206093 Allur ferill málsins
Upplýsingar frá framkvæmdasviði um aðgengismál fyrir fatlaða við Grunnskólann á Stöðvarfirði. Bæjarráð felur framkvæmdasviði að tryggja að aðgengi fyrir fatlaða verði viðunandi við alla kjörstaði í Fjarðabyggð í kosningunum í október nk.
-
5. Samningur um ráðgjafar- og verktakastörf
Mál 1204031 Allur ferill málsins
Lagður fram samningur við Jónu Árnýju Þórðardóttur vegna ráðgjafar- og verktakastarfa. Bæjarráð staðfestir samninginn.
-
6. Samningur um rekstur Náttúrustofu Austurlands 2012 - endurnýjun
Mál 1205026 Allur ferill málsins
Framlagt bréf umhverfisráðuneytisins um endurnýjun samnings um rekstur Náttúrustofu Austurlands og drög að samningi við ráðuneytið.  Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
7. Tilnefningar til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu
Mál 1208047 Allur ferill málsins
Óskað er eftir tilnefningum, fyrir 21.september, til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
8. Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga
Mál 1207004 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga en frestur til að skila inn langtímaáætlun vegna skuldaviðmiðana hefur verið veittur til 17.nóvember.
-
9. Leiguhúsnæði í Fjarðabyggð
Mál 1105142 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála er varðar leiguhúsnæði í Fjarðabyggð.
-
10. Þátttaka í útsvari 2012
Mál 1208015 Allur ferill málsins
Rætt um skipan liðs Fjarðabyggðar í spurningakeppninni Útsvari. Bæjarráð sammála um að liðið verði skipað þeim Ingibjörgu Þórðardóttur, Jóni Svani Jóhannssyni og Kjartani Braga Valgeirssyni.
-
11. Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands 2012
Mál 1105180 Allur ferill málsins
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands verður haldinn 30.ágúst kl. 15:00 á Reyðarfirði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
-
12. Hafnarstjórn - 102
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 102 frá 21.ágúst lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar.
- 12.6 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
-
13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 44
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 44 frá 20.ágúst lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar.