Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 102

21. ágúst 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 304 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 102 frá 21.ágúst lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar.

Dagskrá

  1. 1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012

    Mál 1202146 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar hafnasambands Íslands nr. 348 frá 10. ágúst 2012. Til kynningar.

  2. 2. Starfs- og rekstrarleyfi Fiskeldis Austfjörðum ehf. í Fáskrúðsfirði

    Mál 1206124 Allur ferill málsins

    Bréf frá Fiskistofu dags. 24. júlí þar sem óskað er umsagnar um umsókn um rekstrarleyfi fyrir 3000 tonna þorskeldi í Fáskrúðsfirði frá Fiskeldi Austfjörðum. Fyrir liggur gilt starfsleyfi frá 14. júní 2005. Einnig liggur fyrir bréf bæjarráðs dags. 10. ágúst 2012 þar sem ráðið gefur umsögn um umsóknina þar sem fram koma ábendingar um skilyrði sem setja þurfi í rekstarleyfið við útgáfu þess. Kynnt.

  3. 3. Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum

    Mál 1207083 Allur ferill málsins

    Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur með bréfi dags. 10. júlí 2012 óskað eftir umsögn um umsóknir um starfsleyfi fyrir 200 tonna eldisleyfi í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Á fundi bæjarráðs þann 10. ágúst sl. vísar ráðið erindinu til umsagnar eigna- skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar. Áður hafði bæjarráð fengið frest hjá HAUST til að veita umsögn til 24. ágúst 2012. Fyrir fundinum lá einnig minnisblað dags. 16. ágúst varðandi málið.  Hafnarstjórn vísar minnisblaði til bæjarráðs með eftirfarandi breytingum, að í stað þess að standi:  Tekið verði undir ábendingar Skipulagsstofnunar um að líta beri á umsóknirnar í einni heild og því sé í báðum tilvikum um stærra eldi að ræða en 200 tonn.  Fara ber því með þessar umsóknir samkvæmt því ferli og reglum sem um slík eldi gilda. Verði orðalagið eftirfarandi:Það er skýr afstaða hafnarstjórnar Fjarðabyggðar að líta beri á umsóknirnar í einni heild og því sé í báðum tilvikum um stærra eldi að ræða en 200 tonn.  Fara ber því með þessar umsóknir samkvæmt því ferli og reglum sem um slík eldi gilda.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013

    Mál 1208011 Allur ferill málsins

    Tímaplan ásamt vinnureglum fyrir fjárhagsáætlunarvinnuna við gerð fjárhagsáætlunar 2013 kynnt.

  5. 5. Franski spítalinn - bryggjuaðstaða

    Mál 1105174 Allur ferill málsins

    Kynnt drög að samningi um smíði bryggju við Franska spítalann.

  6. 6. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um vinnu vegna komu skemmtiferðaskipa og markaðsmál hafnanna.  Drög að samningi samþykkt og felur framkvæmdastjóra að ljúka gerð hans.

  7. 7. Þekja frystihúsbryggju Eskifirði

    Mál 1203080 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá minnisblað frá Siglingastofnun dags. 30. júlí 2012 vegna ástands þekju og stálþils framan við fystihúsið á Eskifirði. Hafnarstjórn frestar ákvörðun í málinu og felur framkvæmdastjóra vinna í málinu.

  8. 8. Hafnasambandsþing í Vestmannaeyjum 20 og 21. september 2012.

    Mál 1208014 Allur ferill málsins

    Boð á Hafnasambandsþing í Vestmannaeyjum dagana 20. og 21. september 2012. Hafnarstjórn samþykkti að gefa hafnarstjórnarmönnum kost á að fara.