Hafnarstjórn, fundur 103
13. september 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 308 liður 20
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 103 frá 13.september lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 119 liður 6
Enginn tók til máls. Fundargerð hafnarstjórnar nr. 103 frá 13.september samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Beiðni um styrk til viðhalds bryggju við Strandgötu 60b
Mál 1209028 Allur ferill málsins
Bréf frá eigendum Strandgötu 60b á Eskifirði dags. 6. september 2012 þar sem þeir óska eftir styrk til viðhalds gamalli bryggju á Eskifirði. Eigendurnir gera ráð fyrir að fara í viðgerðina á árinu 2013. Hafnarstjórn samþykkir erindið.
-
2. Endurbætur gamalla bryggja í Fjarðabyggð
Mál 1201270 Allur ferill málsins
Bréf frá Húsfélaginu Strandgötu 64 Eskifirði dags. 24. ágúst 2012, þar sem þeir lýsa því yfir að þeir telji sig ekki eiga bryggjuna eða það sem eftir er af henni sem stendur neðan við húsið. Kynnt og felur hafnarstjórn framkvæmdastjóra að láta fjarlægja bryggjuna.
-
3. Fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016
Mál 1207016 Allur ferill málsins
Kynnt drög að bréfi til Siglingastofnunar vegna samgönguáætlunar 2013-2016. Hafnarstjórn samþykkti drögin.
-
4. Fundagerðir CI á árinu 2012
Mál 1204109 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 13. ágúst 2012. Kynnt.
-
5. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Mál 1202146 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands frá 29. ágúst 2012 nr. 349, ásamt gögnum vegna hafnasambandsþings í Vestmannaeyjum. Kynnt. Framkvæmdastjóra falið að koma á framfæri við stjórn hafnarsambandsins athugasemd við tillögu að breyttum útreikningi aðildargjalda sambandsins og fulltrúafjölda.
-
6. Rafvæðing gámakrana Mjóeyrarhöfn
Mál 1208074 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir fyrirspurn Eflu varðandi fyrirhugaða rafvæðingu gámakrana Eimskipa á Mjóeyrarhöfn. Kynnt.
-
7. Brú yfir Lambeyrará
Mál 1208086 Allur ferill málsins
Innsend hugmynd til hafnarstjórnar um að láta gera göngubrú yfir Lambeyraránna á nýju fyllingunni í stíl við brú sem var yfir sömu á á síðustu öld. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.
-
8. Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn
Mál 1208061 Allur ferill málsins
Farið yfir frumdrög fjárhagsáætlunar fyrir hafnarsjóð árið 2013, ásamt umræðu um gjaldskrá og framkvæmdir ársins. Hafnarstjórn fór yfir drögin og fól framkvæmdastjóra að vinna áætlunina áfram.