Endurbætur gamalla bryggja í Fjarðabyggð
Mál 1201270 Fyrst á dagskrá 7. febrúar 2012, síðast 20. september 2012. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: Hafnir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Hafnarstjórn, fundur 94 liður 6
Með tölvupósti 27. janúar 2012 óskaði Sævar Guðjónsson eftir að tekið yrði til umfjöllunar málefni gamalla bryggja og sjóhúsa og að tekið yrði saman hvað hafi farið í þennan málaflokk. Fyrir fundinum lá minnisblað með samantekt vegna málefnisins. Hafnarstjórn samþykkir að sent verði bréf til eigenda gamalla bryggja og þeim bent á að nú sé síðasta árið í átaki til varðveislu gamalla bryggja með styrk frá hafnarsjóði. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að hækka framlag sitt í 500 þ.kr. með sömu skilyrðum og verið hafa.
-
Bæjarstjórn, fundur 108 liður 4.6
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Hafnarstjórn, fundur 103 liður 2
Bréf frá Húsfélaginu Strandgötu 64 Eskifirði dags. 24. ágúst 2012, þar sem þeir lýsa því yfir að þeir telji sig ekki eiga bryggjuna eða það sem eftir er af henni sem stendur neðan við húsið. Kynnt og felur hafnarstjórn framkvæmdastjóra að láta fjarlægja bryggjuna.
-
Bæjarstjórn, fundur 119 liður 6.2
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 103“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.